Atburðir

03.02.2010 Gleði- og fræðsludagur

 

Gleði- og fræðsludagur Verzlunarskóla Íslands, verður haldinn í tengslum við Nemendamót skólans, þann 3. febrúar n.k. Hefðbundin kennsla verður í fyrstu tveimur tímunum, en eftir það verða fyrirlestrar frá klukkan 10:00 – 14:00.  Hver nemandi sækir þrjá dagskrárliði og víst er að fjölbreytnin er mikil.  Sem dæmi má nefna fyrirlestur frá Jafningjafræðslunni um sjálfsmynd, fyrirlestur um hamingjuna, um sorg og sorgarviðbrögð.  Einnig verður hægt að fara í jóga og sjálfsvörn, hægt að læra að búa til sína eigin skartgripi og einnig verður kynning á þeim listaverkum sem allir verða að sjá einu sinni á lífsleiðinni, svo fátt eitt sé nefnt.  Nemendur geta valið á milli 26 mismunandi dagskrárliða og ljóst er að mörgum mun reynast erfitt að velja á milli þeirra spennandi viðburða sem í boði eru. Nemendur hafa fengið dagskrána senda og eru hvattir til að kynna sér hana vel. Dagskrána má skoða hér.

       

Senda

Innskráning Vefpóstur


Innskráning Fjarnám

Innskráning Foreldrar


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica