ENSK 3VS 05 – Enska, vísindaskáldskapur
Áfangalýsing
Í námskeiðinu verða lesnar skáldsögur og skoðaðar kvikmyndir á sviði vísindaskáldskapar. Litið verður til hvernig verkin endurspegla hugmyndir og þróun á sviði tækni og vísinda, en jafnframt hvernig þau eru vettvangur til að greina samtímann og takast á við sígildar spurningar úr heimspeki, siðfræði og stjórnmálum. Einnig verða könnuð tengsl skáldsagna og kvikmynda við tölvuleiki og sýndarheima á netinu.
Námskeiðið skiptist í þrjú aðalsvið og lýkur með stóru lokaverkefni. Lokaverkefnið verður annað hvort:
- greining á kvikmynd eða skáldsögu að eigin vali,
- smásaga eða
- annað frumsamið verk þar sem unnið er með hugmyndir og pælingar úr námskeiðinu.
Öll vinna á námskeiðinu fer fram á ensku.
Markmið
að nemendur auki ritfærni og orðaforða í ensku
að nemendur auki færni í tjáningu á ensku
að nemendur auki færni í skapandi vinnu með bókmenntir
Námsmat
- Verkefni tengd
bókum og kvikmyndum: 70%
- Lokaverkefni: 30%
Námsgögn
Skáldsögur og kvikmyndir valdar af nemendum, auk myndbanda og lesefnis á vef námskeiðs.