STÆR 2MM 05 - Stærðfræði, margliður og hnitakerfið
Áfanginn er framhald af STÆR2PÞ05 (eða sambærilegum áfanga), fyrir félagsfræða-, alþjóða-, nýsköpunar- og listabraut
Sjá nánar um hæfniviðmið í skólanámskrá VÍ. Námsmat kann að vera öðruvísi í fjarnámi og dagskóla.
Áfangalýsing
Í áfanganum er unnið með mengi, jöfnur, ójöfnur, fleygboga og margliður. Nemendur þurfa að geta reiknað dæmi tengd efninu og rökstutt svör með útreikningum og/eða texta.
Markmið
Að nemendur
- geti unnið með grunnaðgerðir mengja og þekki talnamengin N, Z, Q og R.
- geti leyst ójöfnur, algildisjöfnur, algildisójöfnur og 2. stigs jöfnur.
- þekki tvívítt hnitakerfi, jöfnu fleygboga og helstu eiginleika fleygboga.
- þekki til útreikninga með margliðum og þá sérstaklega öllu sem viðkemur 2. stigs margliðum (finna núllstöðvar, þátta, deila o.fl.).
Efnisatriði
Farið er í mengi og mengjareikning, ójöfnur af fyrsta stigi, samsettar ójöfnur og ójöfnur af hærra stigi. Algildi, algildisjöfnur og algildisójöfnur. Auk þess er farið í annars stigs jöfnur og ýmsar lausnaraðferðir þeirra, fleygboga og skurðpunkta tveggja grafa. Að lokum verður unnið með margliður af hærra stigi.
Námsmat
Próf í annarlok er 120 mínútur og gildir 100%.
Á prófi í annarlok verður prófað í fræðilegu efni ásamt dæmareikningi. Nemandi þarf að fá a.m.k. 5,0 í lokaeinkunn til að standast áfangann.
Námsgögn
Stæ225 eftir Jón Þorvarðarson.
Nemendur þurfa að hafa reiknivél sem ekki getur geymt texta.