Nemendur í fjarnámi VÍ á haustönn 2007

Fjarnemendur á haustönn 2007

Fjöldi

Á haustönn 2007 eru 754 nemendur skráðir í fjarnám hjá Verzlunarskóla Íslands, þar af eru 50 (6,5%) í dagskóla Verzlunarskólans, hinir 704 (93,5%) koma annars staðar frá.  119  (16%) eru nemendur grunnskóla.

Kyn
Af 754 nemendum fjarnámsins eru 275 karlar (36%) og 479 konur (64%). 

Aldur
Meðalaldur fjarnemenda er 24 ár.  Yngsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1996, það er stúlka sem stundar nám í þýsku og verður hún 11 ára í desember.  Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1930, herramaður sem hefur tekið 9 einingar hjá okkur í spænsku, en er núna í frönsku.  Á milli þessara nemenda er 66 ára aldursmunur.

  • Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að fjölmennasti árgangurinn í fjarnáminu er fæddur 1988 (91 nemandi), en það eru nemendur á fjórða ári í framhaldsskóla.  
  • Næst fjölmennasti árgangurinn er fæddur 1992 (89 nemendur) en það eru nemendur í 10. bekk grunnskóla.  

Sjá þessa mynd:

Fjarnamh07












 Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á haustönn 2007 

Búseta

Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá, þá býr um helmingur okkar nemenda í póstnúmerum á bilinu frá 100-190 og fjórðungur til viðbótar í póstnúmerum 200-270.  Tæplega þrír fjórðu hlutar nemenda okkar búa því á Reykjavíkursvæðinu og Suðurnesjum.  Afgangurinn býr annars staðar á landinu, 7% á Vesturlandi, 2% á Vestfjörðum, 7% á Norðurlandi, 2% á Austfjörðum, 7% á Suðurlandi,  restin býr svo erlendis.

Einingar

Að meðaltali tekur hver nemandi rúmar 6 einingar.

Samantekt

Meðalfjarnemandinn okkar er því 24 ára gömul kona sem býr á Stór-Reykjavíkursvæðinu og tekur hún tvo þriggja eininga áfanga.