Nemendur í fjarnámi VÍ á haustönn 2008
Fjarnemendur á haustönn 2008
Fjöldi
Á haust önn 2008 eru 815 nemendur skráðir í fjarnám hjá Verzlunarskóla Íslands og er þetta fjölmennasta haustönnin til þessa. Þar af eru 48 (5,9%) líka í dagskóla Verzlunarskólans, hinir 767 (94,1%) koma annars staðar frá. 144 (17,67%) eru nemendur grunnskóla
Kyn
Af 815 nemendum sumarannar eru konur 520 (63,8%) og karlar 295 (36,2%).
Aldur
Meðalaldur fjarnemenda er 23,9ár. Yngsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1996, það er stúlka sem stundar nám í þýsku og verður hún 12 ára í lok ársins 2008. Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1930 herramaður, sem leggur stund á frönsku og spænsku. Á milli þessara nemenda er 66 ára aldursmunur.
Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að fjölmennustu árgangarnir eru:
- fæddir 1989 (109 nemendur), en það eru nemendur sem eru núna á fjórða ári í framhaldsskóla og
- fæddir 1993 (109 nemendur), en það eru nemendur í 10. bekk grunnskólans.
Næst fjölmennasti árgangurinn er fæddur 1988 (96 nemendur), síðan kemur árgangur 1990 (66 nemandi) og fimmtii fjölmennasti árgangurinn er fæddur 1987 (46 nemendur). Sjá þessa mynd:
Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á haustönn 2008
Búseta
Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá, býr um 70% fjarnemenda í póstnúmerum á bilinu frá 100-270. Um 30% nemenda býr annars staðar á landinu eða erlendis: 6% á Vesturlandi, 2% á Vestfjörðum, 8% á Norðurlandi, 3% á Austfjörðum, 10% á Suðurlandi. Rúmlega 1% nemenda býr erlendis. Flestir búa í póstnúmerum: 200, 220, 105, 108 og 300.
Einingar
Að meðaltali tekur hver nemandi tæpar 6 einingar.
Samantekt
Meðalfjarnemandinn okkar er því 24 ára gömul kona sem býr í Kópavogi og tekur hún tvo þriggja eininga áfanga.