Nemendur í fjarnámi VÍ á haustönn 2009

Fjarnemendur á haustönn 2009

Fjöldi

Á haustönn 2009 eru 894 nemendur skráðir í fjarnám hjá Verzlunarskóla Íslands og er þetta fjölmennasta haustönnin til þessa. Af þessum fjölda eru 144 (16,1%) nemendur grunnskóla og 43 (4,8%) nemendur í dagskóla Verzlunarskólans.

Kyn

Af 893 fjarnemendum eru konur 591 (66,2%) og karlar 302 (33,8%).

Aldur

Meðalaldur fjarnemenda er 22,5 ár. Yngsti nemandi fjarnámsins er fæddur september 1996, það er piltur sem stundar nám í ensku og er hann ný orðinn 13 ára. Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1930, herramaður sem leggur stund á spænsku. Á milli þessara nemenda er 66 ára aldursmunur. Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að:

  • Fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1990 (145 nemendur), en það eru nemendur sem eru núna á fjórða ári í framhaldsskóla.
  • Næst fjölmennustu árgangarnir eru nemendur fæddir 1994 og 1989 (101 nemandi í hvorum árgangi), en það eru nemendur sem eru í 10. bekk grunnskóla og á fimmta ári í framhaldsskóla. 
  • Fjórði fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1991 (71 nemandi) en það eru nemendur sem eru á þriðja ári í framhaldsskóla.

Sjá þessa mynd:

H09Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á haustönn 2009.

Búseta

Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá, búa flestir fjarnemendur í 600, næst flestir í 220, þá 112, 200, 300, 105, 210, 108, 109, 110, 107 og 201.

Um 66% fjarnemenda býr í póstnúmerum á bilinu frá 100-270. Um 34% nemenda býr annars staðar á landinu eða erlendis: Rúm 7% á Vesturlandi, rúm 4% á Vestfjörðum, rúm 12% á Norðurlandi, rúm 2% á Austfjörðum, rúm 7% á Suðurlandi og um 2% erlendis.

Einingar

Að meðaltali tekur hver nemandi rúmlega 6 einingar.

Samantekt

Meðalfjarnemandinn okkar er því 22,5 árs kona sem býr á Akureyri og tekur hún tvo þriggja eininga áfanga.