Nemendur í fjarnámi VÍ á haustönn 2013

Fjarnemendur á haustönn 2013

Fjöldi

Á haustönn 2013 eru 541 nemendur skráðir í fjarnám við Verzlunarskóla Íslands. Af þessum 541 fjarnemendum eru:

  • 78 (14,4%) nemendur grunnskóla
  • 75 (13,9%) nemendur í dagskóla Verzlunarskólans
  • 176 (32,5%) nemendur annarra framhaldsskóla
  • 2 ( 0,4%) nemandi háskóla
  • 210 (38,8%) ekki skráðir í skóla.

Kyn

Af 541 fjarnemendum eru konur 310 (57,3%) og karlar 231 (42,7%).

Aldur

Meðalaldur fjarnemenda er 21,8ár.

Yngsti fjarnemandinn er fæddur í júlí 2000 og varð hann því 13 ára á þessu ári, það er stúlka sem stundar nám í ensku. Næst yngsti fjarnemandinn er 11 dögum eldri, en það er líka stúlka sem einnig stundar nám í ensku.

Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1945, en það er kona sem leggur stund á ensku. Næst elsti fjarnemandinn er kona sem er fædd 1947, en hún stundar nám í spænsku.

Á milli elsta og yngsta fjarnemandans er 55 ára aldursmunur.

Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að rúmlega helmingur nemenda eru fæddir á árunum 1993, 1994, 1995, 1996 og 1997, en það eru nemendur sem eru á hefðbundunum framhaldsskóla aldri og einn árgangur sem væntanlega er á sínu fimmta ári í framhaldsskóla:

  • Fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1994 (97 nemendur, 17.9%), en það eru nemendur sem nú eru væntanlega á fjórða ári í framhaldsskóla.
  • Næst fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1993 (83 nemendur, 15,3%), en það eru nemendur sem nú eru væntanlega á fimmta ári í framahaldsskóla.
  • Þriðji fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1995 (56 nemendur, 10,4%), en það eru nemendur sem nú eru væntanlega á þriðja ári í framhaldsskóla.
  • Fjórði fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1998 (55 nemendur, 10,2%), en það það eru nemendur sem nú eru væntanlega á síðasta ári í grunnskóla.
  • Fimmti fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1996 (35 nemendur, 6,5%), en það eru nemendur sem nú eru væntanlega á öðru ári í framhaldsskóla.
  • Sjötti fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1992 (33 nemendur, 6,1%), en það eru nemendur sem nú eru væntanlega á sjötta ári í framhaldsskóla.

Sjá nánar á þessari mynd:

H13xMyndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á haustönn 2013.

Búseta

Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá, búa flestir fjarnemendur í 300, næst flestir í 108 og síðan í 112, 200, 110, 105, 220, 101, 600, 221, 230, 210 og 109.

Um 66% fjarnemenda býr í póstnúmerum á bilinu frá 100-271, en um 34% nemenda annars staðar á landinu eða erlendis. Rúm 8% á Vesturlandi, rúmt 1% á Vestfjörðum, tæp 12% á Norðurlandi, rúm 2% á Austfjörðum, tæp 7% á Suðurlandi og um 4% erlendis.

Einingar

Að meðaltali tekur hver nemandi 5,4 einingar.

Samantekt

Meðalfjarnemandinn okkar er því tæplega 22 ára kona sem býr á Akranesi og tekur hún tvo áfanga í fjarnámi á önninni.