Nemendur í fjarnámi VÍ á haustönn 2014
Fjarnemendur á haustönn 2014
Fjöldi
Á haustönn 2014 eru 500 nemendur skráðir í fjarnám við Verzlunarskóla Íslands. Af þessum 500 fjarnemendum eru:
- 73 (14,6%) nemendur grunnskóla
- 60 (12,0%) nemendur í dagskóla Verzlunarskólans
- 167 (33,4%) nemendur annarra framhaldsskóla
- 6 ( 1,2%) nemandi háskóla
- 194 (38,8%) ekki skráðir í skóla.
Kyn
Af 500 fjarnemendum eru konur 284 (56,8%) og karlar 216 (43,2%).
Aldur
Meðalaldur fjarnemenda er 22,4 ár.
Yngsti fjarnemandinn er fæddur síðla árs árið 2001 og verður hann því 13 ára á þessu ári, það er piltur sem stundar nám í dönsku . Næst yngsti fjarnemandinn er 20 dögum eldri, en það er stúlka sem stundar nám í ensku. Auk þeirra eru fjórir aðrir nemendur fæddir 2001 og leggja þau stund á ensku og stærðfræði.
Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1942, en það er kona sem leggur stund á spænsku. Næst elsti fjarnemandinn er kona sem er fædd 1945, en hún stundar nám í þýsku.
Á milli elsta og yngsta fjarnemandans er 59 ára aldursmunur.
Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að rúmlega helmingur nemenda eru fæddir á árunum 1994, 1995, 1996, 1997 og 1998, en það eru nemendur sem eru á hefðbundunum framhaldsskóla aldri og einn árgangur sem væntanlega er á sínu fimmta ári í framhaldsskóla:
- Fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1995 (86 nemendur, 17.2%), en það eru nemendur sem nú eru væntanlega á fjórða ári í framhaldsskóla.
- Næst fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1994 (58 nemendur, 11,6%), en það eru nemendur sem nú eru væntanlega á fimmta ári í framahaldsskóla.
- Þriðji fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1999 (48 nemenduri, 9,6%), en það eru nemendur sem nú eru væntanlega á síðasta ári í grunnskóla.
- Fjórði fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1997 (47 nemendur, 9,4%), en það það eru nemendur sem nú eru væntanlega á öðru ári í framhaldsskóla.
- Fimmti fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1996 (44 nemendur, 8,8%), en það eru nemendur sem nú eru væntanlega á þriðja ári í framhaldsskóla.
- Sjötti fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1993 (28 nemendur, 5,6%), en það eru nemendur sem nú eru væntanlega á sjötta ári í framhaldsskóla.
Sjá nánar á þessari mynd:
Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á haustönn 2014.
Búseta
Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá, búa flestir fjarnemendur í 200, næst flestir í 112 og síðan í 105, 101, 108, 600, 210 og 110.
Um 75% fjarnemenda býr í póstnúmerum á bilinu frá 100-271, en um 25% nemenda annars staðar á landinu eða erlendis. Tæp 5% á Vesturlandi, rúmt 1% á Vestfjörðum, tæp 11% á Norðurlandi, rúmt 1% á Austfjörðum, tæp 2% á Suðurlandi og um 4% erlendis.
Einingar
Að meðaltali tekur hver nemandi 5,4 einingar.
Samantekt
Meðalfjarnemandinn okkar er því rúmlega 22 ára kona sem býr í Kópavogi og tekur hún tvo áfanga í fjarnámi á önninni.