Sumarönn 2018
Fjöldi
Á sumar önn 2018 eru 472 nemendur skráðir í fjarnám við Verzlunarskóla Íslands. Af þessum 472 fjarnemendum eru:
- 0 (0,0%) nemandi háskóla
- 8 (1,7%) nemendur grunnskóla
- 75 (15,9%) nemendur í dagskóla Verzlunarskólans
- 255 (54,0%) nemendur annarra framhaldsskóla
- 134 (28,4%) ekki skráðir í skóla.
Kyn
Af 472 fjarnemendum eru konur 274 (58,1%) og karlar 198 (41,9%).
Aldur
Meðalaldur fjarnemenda er 20,5 ár.
Yngsti fjarnemandinn er fæddur í maí 2004 og varð hann því 14 ára í vor, það er stúlka sem stundar nám í dönsku. Næst yngsti fjarnemandinn er fæddur í febrúar 2004 og er það piltur sem stundar nám í ensku.
Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1959, en það er kona sem leggur stund á spænsku. Næst elsti fjarnemandinn er kona sem er fædd 1960, en hún stundar nám í íslensku og stjórnun.
Á milli elsta og yngsta fjarnemandans er 45 ára aldursmunur.
Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að tæplega 80 % nemenda eru fæddir á árunum 1997, 1998, 1999, 2000 og 2001 en það eru nemendur sem eru á hefðbundunum framhaldsskóla aldri og einn árgangur sem væntanlega hefur lokið sínu fimmta ári í framhaldsskóla:
- Fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 2000 (115 nemendur, 24,4%), en það eru nemendur sem voru væntanlega á öðru ári í framhaldsskóla s.l. vetur.
- Næst fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 2001 (97 nemendur, 21,0%), en það eru nemendur sem voru væntanlega á fyrsta ári í framhaldsskóla s.l. vetur.
- Þriðji fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1999 (71 nemendur, 15,0%), en það eru nemendur sem voru væntanlega á þriðja ári í framhaldsskóla s.l. vetur.
- Fjórði fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1998 (44 nemendur, 9,3%), en það það eru nemendur sem voru væntanlega á fjórða ári í framhaldsskóla s.l. vetur.
- Fimmti fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1997 (36 nemendur, 7,6%), en það eru nemendur semvoru væntanlega á fimmta ári í framhaldsskóla s.l. vetur.
Sjá nánar á þessari mynd:
Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á sumarönn 2018.
Búseta
Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá, búa flestir fjarnemendur í 600, næst flestir í 108 og síðan í 220, 210, 603, 200, 105 og 112.
Rúmlega 70% fjarnemenda býr í póstnúmerum á bilinu frá 100-270, en tæplega 30% nemenda býr annars staðar á landinu eða erlendis. Tæpt 1% á Vesturlandi, tæpt 1% á Vestfjörðum, rúm 22% á Norðurlandi, rúm 3% á Austfjörðum, tæp 3% á Suðurlandi og um 1% erlendis.
Einingar
Að meðaltali tekur hver nemandi 5,14 einingar
Samantekt
Meðalfjarnemandinn okkar er því rúmlega tvítug kona sem býr í 600 Akureyri og tekur hún tvo áfanga í fjarnámi á önninni.