Sumarönn 2019

Fjöldi

Á sumar önn 2019 eru 431 nemandi skráðir í fjarnám við Verzlunarskóla Íslands. Af þessum 431 fjarnemendum eru:

  • 0 (0,0%) nemandi háskóla
  • 6 (1,4%) nemendur grunnskóla
  • 86 (19,9%) nemendur í dagskóla Verzlunarskólans
  • 136 (31,6%) nemendur annarra framhaldsskóla
  • 203 (47,1%) ekki skráðir í skóla.

Kyn

Af 431 fjarnemendum eru konur 233 (54,1%) og karlar 198 (45,9%).

Aldur

Meðalaldur fjarnemenda er 20,7 ár.

Yngsti fjarnemandinn er fæddur í mars 2007 og varð hann því 12 ára í vor, það er piltur sem stundar nám í dönsku. Næst yngsti fjarnemandinn er fæddur í ágúst 2006 og er það piltur sem stundar nám í spænsku.

Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur í desember 1946, en það er karl sem leggur stund á spænsku. Næst elsti fjarnemandinn er kona sem er fædd 1950 og stundar hún einnig nám í spænsku.

Á milli elsta og yngsta fjarnemandans er 61 ársaldursmunur.

Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að rúmlega þrír fjórðu hlutar nemenda eru fæddir á árunum 1998, 1999, 2000, 2001 og 2002 en það eru nemendur sem eru á hefðbundunum framhaldsskóla aldri og tveir árgangar sem væntanlega hafa lokið sínu fjórða og fimmta ári í framhaldsskóla:

  • Fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 2001 (115 nemendur, 26,7%), en það eru nemendur sem voru væntanlega á öðru ári í framhaldsskóla s.l. vetur.
  • Næst fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 2002 (103 nemendur, 23,9%), en það eru nemendur sem voru væntanlega á fyrsta ári í framhaldsskóla s.l. vetur.
  • Þriðji fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 2000 (56 nemendur, 13,0%), en það eru nemendur sem voru væntanlega á þriðja ári í framhaldsskóla s.l. vetur.
  • Fjórði fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1999 (31 nemendur, 7,2%), en það það eru nemendur sem voru væntanlega á fjórða ári í framhaldsskóla s.l. vetur.
  • Fimmti fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1998 (22 nemendur, 5,1%), en það eru nemendur semvoru væntanlega á fimmta ári í framhaldsskóla s.l. vetur.

Sjá nánar á þessari mynd:

S19_1566916950255

 Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á sumarönn 2019.

Búseta

Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá, búa flestir fjarnemendur í 210, næst flestir í 200 og síðan í 112, 110, 600, 101, 270 og 203.

Tæplega 80% fjarnemenda býr í póstnúmerum á bilinu frá 100-271, en rúmlega 20% nemenda býr annars staðar á landinu eða erlendis. Rúmt 1% á Vesturlandi, tæpt 1% á Vestfjörðum, rúm 11% á Norðurlandi, tæp 2% á Austfjörðum, tæp 4% á Suðurlandi og um 2% erlendis.

Einingar

Að meðaltali tekur hver nemandi 4,73 gamlareiningar (7,88 nýjar framhaldsskóla einingar).

Samantekt

Meðalfjarnemandinn okkar er því rúmlega tvítug kona sem býr í 210 Garðabæ og tekur hún tvo áfanga í fjarnámi á önninni.