Sumarönn 2020
Fjöldi
Á sumar önn 2020 eru 585 nemandi skráðir í fjarnám við Verzlunarskóla Íslands.
Kyn
Af 585 fjarnemendum eru konur 331 (56,6%) og karlar 254 (43,4%).
Aldur
Meðalaldur fjarnemenda er 20,7 ár.
Yngsti fjarnemandinn er fæddur í desember 2006 og verður hann því 14 ára á þessu ári, það er stúlka sem stundar nám í íslensku. Næst yngsti fjarnemandinn er fæddur í ágúst 2006 og er það piltur sem stundar nám í spænsku. Auk þeirra er einn nemandi fæddur árið 2006 og er það stúlka sem stundar nám í íslensku.
Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur í janúar 1950, en það er kona sem leggur stund á spænsku. Næst elstu fjarnemendurnir eru konur sem eru fæddar árið 1960 og stunda þær nám í frönsku og íslensku.
Á milli elsta og yngsta fjarnemandans er 56 ársaldursmunur.
Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að rúmlega þrír fjórðu hlutar nemenda eru fæddir á árunum 1999, 2000, 2001, 2002 og 2003 en það eru nemendur sem eru á hefðbundunum framhaldsskóla aldri og tveir árgangar sem væntanlega hafa lokið sínu fjórða og fimmta ári í framhaldsskóla:
- Fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 2002 (135 nemendur, 23,1%), en það eru nemendur sem voru væntanlega á öðru ári í framhaldsskóla s.l. vetur.
- Næst fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 2001 (107 nemendur, 18,3%), en það eru nemendur sem voru væntanlega á þriðja ári í framhaldsskóla s.l. vetur.
- Þriðji fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 2003 (87 nemendur, 14,9%), en það eru nemendur sem voru væntanlega á fyrsta ári í framhaldsskóla s.l. vetur.
- Fjórði fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 2000 (72 nemendur, 12,3%), en það það eru nemendur sem voru væntanlega á fjórða ári í framhaldsskóla s.l. vetur.
- Fimmti fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1999 (33 nemendur, 5,6%), en það eru nemendur sem voru væntanlega á fimmta ári í framhaldsskóla s.l. vetur.
Sjá nánar á þessari mynd:
Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á sumarönn 2020.
Búseta
Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá, búa flestir fjarnemendur í 112, næst flestir í 210 og síðan í 200, 108, 221, 220, 107, 600, 110 og 105.
Tæplega 80% fjarnemenda býr í póstnúmerum á bilinu frá 100-276, en rúmlega 20% nemenda býr annars staðar á landinu eða erlendis. Rúm 2% á Vesturlandi, tæpt 1% á Vestfjörðum, rúm 8% á Norðurlandi, rúm 2% á Austfjörðum, rúm 3% á Suðurlandi og um 3% erlendis.
Einingar
Að meðaltali tekur hver nemandi 5,67 gamlar einingar (9,45 nýjar framhaldsskóla einingar).
Samantekt
Meðalfjarnemandinn okkar er því rúmlega tvítug kona sem býr í Grafarvogi og tekur hún tvo áfanga í fjarnámi á önninni.