Fjarnemendur á sumarönn 2021
Fjöldi
Á sumarönn 2021 eru 694 nemandi skráðir í fjarnám við Verzlunarskóla Íslands. Af þessum 694 fjarnemendum eru:
- 6 (0,9%) nemendur grunnskóla
- 97 (14,0%) nemendur í dagskóla Verzlunarskólans
- 298 (42,9%) nemendur annarra framhaldsskóla
- 293 (42,2%) ekki skráðir í skóla.
Að auki eru 20 nemendur í fagnámi verslunar og þjónustu.
Kyn
Af 694 fjarnemendum eru konur 396 (57,0%) og karlar 298 (43,0%).
Aldur
Meðalaldur fjarnemenda er 20,6 ár.
Yngsti fjarnemandinn er fæddur í febrúar 2007 og varð því 14 ára á þessu ári, það er stúlka sem stundar nám í vélritun. Næst yngstu fjarnemendurnir eru fæddir árið áður, en þeir eru 5 talsins, fjórir piltar og ein stúlka.
Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur í febrúar 1962, en það er karl sem stundar nám í alþjóðafræði og íslensku. Næst elsti fjarnemandinn er kona sem er fædd 1965 og leggur hún stund á spænsku.
Á milli elsta og yngsta fjarnemandans er 45 ársaldursmunur.
Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að rúmlega þrír fjórðu hlutar nemenda eru fæddir á árunum 2001, 2002, 2003 og 2004 en það eru nemendur sem eru á hefðbundunum framhaldsskóla aldri og einn árgangur sem væntanlega hefur lokið sínu fjórða ári í framhaldsskóla. Hluti af síðast talda árganginum hefur lokið stúdentsprófi og eru nemendur þar að bæta við sig áföngum vegna háskólanáms.
- Fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 2003 (147 nemendur, 21,2%), en það eru nemendur sem voru væntanlega á öðru ári í framhaldsskóla s.l. vetur.
- Næst fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 2002 (109 nemendur, 20,0%), en það eru nemendur sem voru væntanlega á þriðja ári í framhaldsskóla s.l. vetur.
- Þriðji fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 2004 (132 nemendur, 19,0%), en það eru nemendur sem voru væntanlega á fyrsta ári í framhaldsskóla s.l. vetur.
- Fjórði fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 2001 (83 nemendur, 12,0%), en það það eru nemendur sem voru væntanlega á fjórða ári í framhaldsskóla s.l. vetur.
- Fimmti fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 2000 (33 nemendur, 4,8%).
Sjá nánar á þessari mynd:Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á sumarönn 2021.
Búseta
Ef póstnúmer lögheimila fjarnemenda eru skoðuð, kemur í ljós að flestir búa í 210, næst flestir í 112 og síðan í 220, 200, 110, 221, 104, 101 og 105.
Rúmlega 80% fjarnemenda býr í póstnúmerum á bilinu frá 100-276, en tæplega 20% nemenda býr annars staðar á landinu eða erlendis. Rúm 1% á Vesturlandi, um 1,5% á Vestfjörðum, rúm 5,5% á Norðurlandi, rúm 3% á Austfjörðum, rúm 5,5% á Suðurlandi og um 1% erlendis.
Einingar
Að meðaltali tekur hver nemandi 9,1 nýjar framhaldsskóla einingar.
Samantekt
Meðalfjarnemandinn okkar er því rúmlega tvítug kona sem býr í Garðabæ og tekur hún tvo áfanga í fjarnámi á önninni.