Nemendur í fjarnámi VÍ á sumarönn 2009
Fjarnemendur á sumarönn 2009
Fjöldi
Á sumarönn 2009 eru 979 nemendur skráðir í fjarnám hjá Verzlunarskóla Íslands og er þetta fjölmennasta fjarnámsönnin til þessa. Af þessum fjölda eru 121 (12,4%) líka í dagskóla Verzlunarskólans.
Kyn
Af 979 fjarnemendum eru konur 595 (60,8%) og karlar 384 (39,2%).
Aldur
Meðalaldur fjarnemenda er 21,4 ár. Yngsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1997, það er piltur sem stundar nám í vélritun og er hann ný orðinn 12 ára. Elsti nemandi fjarnámsins er fædd 1943, kona sem leggur stund á spænsku. Á milli þessara nemenda er 54 ára aldursmunur. Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að:
- Fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1990 (197 nemendur), en það eru nemendur sem eru nýbúnir að ljúka þriðja ári í framhaldsskóla.
- Næst fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1992 (167 nemendur), en það eru nemendur sem eru nýbúnir að ljúka fyrsta ári í framhaldsskóla. Fast á eftir þeim koma nemendur fæddir 1991 (196 nemendur), en þeir eru nýbúnir að ljúka öðru ári í framhaldsskóla.
- Fjórði fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1989 (118 nemendur) en það eru nemendur sem eru trúlega búnir að vera 4 ár í framhaldsskóla.
Sjá þessa mynd:
Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á sumarönn 2009.
Búseta
Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá, búa flestir fjarnemendur í 600, næst flestir í 112, þá 200, 105, 107, 109, 220, 108, 221, 300 og 101.
Um 61% fjarnemenda búa í póstnúmerum á bilinu frá 100-270. Um 39% nemenda býr annars staðar á landinu eða erlendis: Rúm 5% á Vesturlandi, tæp 2% á Vestfjörðum, tæp 19% á Norðurlandi, rúm 4% á Austfjörðum, tæp 9% á Suðurlandi og um 2% erlendis.
Einingar
Að meðaltali tekur hver nemandi rúmlega 6 einingar.
Samantekt
Meðalfjarnemandinn okkar er því rúmlega 21 árs kona sem býr á Akureyri og tekur hún tvo þriggja eininga áfanga.