Nemendur í fjarnámi VÍ á sumarönn 2010

Fjarnemendur á sumarönn 2010

Fjöldi

Á sumarönn 2010 eru 877 nemendur skráðir í fjarnám við Verzlunarskóla Íslands. Af þessum fjölda eru 104 (11,9%) líka í dagskóla Verzlunarskólans.

Kyn

Af 877 fjarnemendum eru konur 530 (60,4%) og karlar 347 (39,6%).

Aldur

Meðalaldur fjarnemenda er 21,4 ár. Yngsti nemandi fjarnámsins er fæddur í ágúst 1995, það er stúlka sem stundar nám í dönsku og er hún að verða 15 ára. Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1946, en það er maður sem leggur stund á spænsku. Á milli þessara nemenda er 49 ára aldursmunur. Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að;

  • Fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1991 (191 nemandi), en það eru nemendur sem eru nýbúnir að ljúka þriðja ári í framhaldsskóla.
  • Næst fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1992 (147 nemendur), en það eru nemendur sem eru nýbúnir að ljúka öðru ári í framhaldsskóla.
  • Þriðji fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1990 (133 nemendur) en að eru nemendur sem eru trúlega búnir að vera 4 ár í framhaldsskóla.
  • Fjórði fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1993 (101 nemandi) en það það eru nemendur sem eru búnir að ljúka fyrsta ári í framhaldsskóla.

Sjá nánar á þessari mynd:

Sumar2010Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á sumarönn 2010.

Búseta

Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá, búa flestir fjarnemendur í 600, næst flestir í 112, þá 200, 220, 603, 108, 110, 300, 105, 107 og 800.

Um 60% fjarnemenda býr í póstnúmerum á bilinu frá 100-270, en um 40% nemenda annars staðar á landinu eða erlendis. Tæp 6% á Vesturlandi, rúm 1% á Vestfjörðum, tæp 19% á Norðurlandi, tæp 4% á Austfjörðum, tæp 10% á Suðurlandi og um 2% erlendis.

Einingar

Að meðaltali tekur hver nemandi rúmlega 5 einingar.

Samantekt

Meðalfjarnemandinn okkar er því rúmlega 21 árs kona sem býr á Akureyri og tekur hún 5 einingar í fjarnámi í sumar.