Nemendur í fjarnámi VÍ á sumarönn 2012

Fjarnemendur á sumarönn 2012

Fjöldi

Á sumarönn 2012 eru 572 nemendur skráðir í fjarnám við Verzlunarskóla Íslands. Af þessum fjölda eru 112 (19,6%) líka í dagskóla Verzlunarskólans.

Kyn

Af 572 fjarnemendum eru konur 321 (56,1%) og karlar 251 (43,9%).

Aldur

Meðalaldur fjarnemenda er 21,7 ár. Yngsti nemandi fjarnámsins er fæddur í júní 1998, það er stúlka sem stundar nám í stærðfræði og er hún 14 ára. Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1945, en það er kona sem leggur stund á ensku. Á milli þessara nemenda er 53 ára aldursmunur. Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að:

  • Fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1993 (124 nemendur), en það eru nemendur sem eru nýbúnir að ljúka þriðja ári í framhaldsskóla.
  • Næst fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1994 (114 nemendur), en það eru nemendur sem eru nýbúnir að ljúka öðru ári í framhaldsskóla.
  • Þriðji fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1995 (70 nemendur) en að eru nemendur sem eru nýbúnir að ljúka fyrsta ári í framhaldsskóla.
  • Fjórði fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1992 (68 nemendur) en það það eru nemendur sem eru búnir að vera fjögur ár í framhaldsskóla.

Sjá nánar á þessari mynd:

Sumar12xMyndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á sumarönn 2012.

Búseta

Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá, búa flestir fjarnemendur í 600, næst flestir í 112, þá 603, 200, 220, 108, 105, 300, 101, 201 og 210.

Tæp 63% fjarnemenda býr í póstnúmerum á bilinu frá 100-271, en um 37% nemenda annars staðar á landinu eða erlendis. Tæp 6% á Vesturlandi, um 1,5% á Vestfjörðum, tæp 20% á Norðurlandi, um 3,5% á Austfjörðum, tæp 5% á Suðurlandi og um 2% erlendis.

Einingar

Að meðaltali tekur hver nemandi rúmlega 5 einingar.

Samantekt

Meðalfjarnemandinn okkar er því tæplega 22 ára kona sem býr á Akureyri og tekur hún 5 einingar í fjarnámi í sumar.