Nemendur í fjarnámi VÍ á sumarönn 2013

Fjarnemendur á sumarönn 2013

Fjöldi

Á sumar önn 2013 eru 698 nemendur skráðir í fjarnám við Verzlunarskóla Íslands. Af þessum 698 fjarnemendum eru:

  • 12 (1,7%) nemendur grunnskóla
  • 155 (22,2%) nemendur í dagskóla Verzlunarskólans
  • 331 (47,4%) nemendur annarra framhaldsskóla
  • 33 ( 4,7%) nemandi háskóla
  • 167 (23,9%) ekki skráðir í skóla.

Kyn

Af 698 fjarnemendum eru konur 387 (55,4%) og karlar 311 (44,6%).

Aldur

Meðalaldur fjarnemenda er 21,0 ár.

Yngsti fjarnemandinn er fæddur í júlí 2000 og verður hann því 13 ára á þessu ári, það er stúlka sem stundar nám í ensku. Næst yngsti fjarnemandinn er hálfu ári eldri, en það er stúlka sem líka stundar nám í ensku. Auk hennar er einn annar nemandi fæddur árið 1999.

Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1945, en það er kona sem leggur stund á tölvunám. Næst elsti fjarnemandinn er kona sem er fædd 1956, en hún stundar nám í bókfærslu og íslensku.

Á milli elsta og yngsta fjarnemandans er 55 ára aldursmunur.

Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að tæplega 3/4 hlutar nemenda eru fæddir á árunum 1992, 1993, 1994, 1995 og 1996, en það eru nemendur sem eru á hefðbundunum framhaldsskóla aldri og einn árgangur sem væntanlega er á sínu fimmta ári í framhaldsskóla:

  • Fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1995 (144 nemendur, 20,6%), en það eru nemendur sem nú hafa væntanlega lokið öðru ári í framhaldsskóla.
  • Næst fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1994 (133 nemendur, 19,1%), en það eru nemendur sem nú hafa væntanlega lokið þriðja ári í framahaldsskóla.
  • Þriðji fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1996 (108 nemandi, 15,5%), en að eru nemendur sem nú hafa væntanlega lokið fyrsta ári í framhaldsskóla.
  • Fjórði fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1993 (75 nemendur, 10,7%), en það það eru nemendur sem hafa væntanlega lokið fjórða ári í framhaldsskóla.
  • Fimmti fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1992 (51 nemendur, 7,3%), en það eru nemendur sem nú hafa væntanlega lokið fimmta ári í framhaldsskóla.

Sjá nánar á þessari mynd:

S13xMyndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á sumarönn 2013.

Búseta

Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá, búa flestir fjarnemendur í 600, næst flestir í 108 og síðan í 105, 200, 210, 112, 603, 270, 220, 110, 203, 101 og 300.

Um 69% fjarnemenda býr í póstnúmerum á bilinu frá 100-276, en um 31% nemenda annars staðar á landinu eða erlendis. Rúm 4% á Vesturlandi, rúmt 1% á Vestfjörðum, tæp 18% á Norðurlandi, rúm 2% á Austfjörðum, tæp 5% á Suðurlandi og um 1% erlendis.

Einingar

Að meðaltali tekur hver nemandi 5,0 einingar.

Samantekt

Meðalfjarnemandinn okkar er því 21 árs kona sem býr á Akureyri og tekur hún tvo áfanga í fjarnámi á önninni.