Nemendur í fjarnámi VÍ á sumarönn 2014
Fjarnemendur á sumarönn 2014
Fjöldi
Á sumarönn 2014 eru 592 nemendur skráðir í fjarnám við Verzlunarskóla Íslands. Af þessum 592 fjarnemendum eru:
- 5 (0,8%) nemendur grunnskóla
- 138 (23,3%) nemendur í dagskóla Verzlunarskólans
- 276 (46,6%) nemendur annarra framhaldsskóla
- 2 ( 0,3%) nemandi háskóla
- 171 (28,9%) ekki skráðir í skóla.
Kyn
Af 592 fjarnemendum eru konur 335 (56,6% og karlar 257 (43,4%).
Aldur
Meðalaldur fjarnemenda er 21,7 ár.
Yngsti fjarnemandinn er fæddur í júlí 2000 og verður hann því 14ára á þessu ári, það er stúlka sem stundar nám í ensku. Næst yngsti fjarnemandinn er rúmu hálfu ári eldri, en það er stúlka sem stundar nám í dönsku, íslensku og stærðfræði. Auk hennar er einn annar nemandi fæddur árið 1999, það er stúlka og stundar hún nám í ensku, stærðfræði og þýsku.
Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1942, en það er kona sem leggur stund á spænsku. Næst elsti fjarnemandinn er karl sem er fæddur 1950, en hann leggur stund á spænsku.
Á milli elsta og yngsta fjarnemandans er 58ára aldursmunur.
Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að tæplega 3/4 hlutar nemenda eru fæddir á árunum 1993, 1994, 1995, 1996 og 1997, en það eru nemendur sem eru á hefðbundunum framhaldsskóla aldri og einn árgangur sem væntanlega er á sínu fimmta ári í framhaldsskóla:
- Fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1995 (149 nemendur, 25,2%), en það eru nemendur sem nú hafa væntanlega lokið þriðja ári í framhaldsskóla.
- Næst fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1996 (112 nemendur, 18,9%), en það eru nemendur sem nú hafa væntanlega lokið öðru ári í framahaldsskóla.
- Þriðji fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1997 (75 nemandi, 12,7%), en að eru nemendur sem nú hafa væntanlega lokið fyrsta ári í framhaldsskóla.
- Fjórði fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1994 (62 nemendur, 10,5%), en það það eru nemendur sem hafa væntanlega lokið fjórða ári í framhaldsskóla.
- Fimmti fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1993 (40 nemendur, 6,8%), en það eru nemendur sem nú hafa væntanlega lokið fimmta ári í framhaldsskóla.
Sjá nánar á þessari mynd:
Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á sumarönn 2014
(100 á x-ás merkir árið 2000).
Búseta
Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá, búa flestir fjarnemendur í 112, næst flestir í 600 og síðan í 108, 110, 115, 200, 201 og 603.
Um 67% fjarnemenda býr í póstnúmerum á bilinu frá 100-276, en um 33% nemenda annars staðar á landinu eða erlendis. Tæp 3% á Vesturlandi, tæp 2% á Vestfjörðum, rúm 18% á Norðurlandi, rúm 3% á Austfjörðum, rúm 5% á Suðurlandi og um 2% erlendis.
Einingar
Að meðaltali tekur hver nemandi 5,3 einingar.
Samantekt
Meðalfjarnemandinn okkar er því rúmlega 21 árs kona sem býr í Grafarvoginum og tekur hún tvo áfanga í fjarnámi á önninni.