Nemendur í fjarnámi VÍ á sumarönn 2015
Fjarnemendur á sumarönn 2015
Fjöldi
Á sumarönn 2015 eru 940 nemendur skráðir í fjarnám við Verzlunarskóla Íslands, þar af eru 193 nýnemar í vélritunaráfanga (VÉLR1FI02) og/eða skráðir á undirbúningsnámskeið í stærðfræði. Alls eru því 747 nemendur í hefðbundnu fjarnámi og verður eingöngu fjallað um þá hér. Af þessum 747 fjarnemendum eru:
- 4 (0,5%) nemendur grunnskóla
- 181 (24,2%) nemendur í dagskóla Verzlunarskólans
- 339 (45,4%) nemendur annarra framhaldsskóla
- 6 ( 0,8%) nemandi háskóla
- 217 (29,1%) ekki skráðir í skóla.
Kyn
Af 747 fjarnemendum eru konur 398 (53,3%) og karlar 349 (46,7%).
Aldur
Meðalaldur fjarnemenda er 21,4 ár.
Yngsti fjarnemandinn er fæddur í júlí 2000 og verður hann því 15 ára á þessu ári, það er stúlka sem stundar nám í ensku. Hún er eini fjarnemandinn sem er fæddur árið 2000 þetta sumarið. Næst yngstu fjarnemendurnir eru ári yngri, þeir eru alls 12 og stunda þeir nám í ýmsum greinum.
Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1942, en það er kona sem leggur stund á spænsku. Næst elsti fjarnemandinn er karl sem er fæddur 1951, en hann leggur stund á bókfærslu og tölvunotkun.
Á milli elsta og yngsta fjarnemandans er 58 ára aldursmunur.
Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að tæplega 3/4 hlutar nemenda eru fæddir á árunum 1994, 1995, 1996, 1997 og 1998, en það eru nemendur sem eru á hefðbundunum framhaldsskóla aldri og einn árgangur sem væntanlega er á sínu fimmta ári í framhaldsskóla:
- Fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1996 (170 nemendur, 22,8%), en það eru nemendur sem nú hafa væntanlega lokið þriðja ári í framhaldsskóla.
- Næst fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1997 (136 nemendur, 18,2%), en það eru nemendur sem nú hafa væntanlega lokið öðru ári í framahaldsskóla.
- Þriðji fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1998 (117 nemandi, 15,7%), en að eru nemendur sem nú hafa væntanlega lokið fyrsta ári í framhaldsskóla.
- Fjórði fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1995 (79 nemendur, 10,6%), en það það eru nemendur sem hafa væntanlega lokið fjórða ári í framhaldsskóla.
- Fimmti fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1994 (54 nemendur, 7,2%), en það eru nemendur sem nú hafa væntanlega lokið fimmta ári í framhaldsskóla.
Sjá nánar á þessari mynd:
Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á sumarönn 2015
(0 á x-ás merkir árið 2000).
Búseta
Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá, búa flestir fjarnemendur í 112, næst flestir í 600 og síðan í 200, 108, 210, 110, 603 og 105.
Um 70% fjarnemenda býr í póstnúmerum á bilinu frá 100-276, en um 30% nemenda annars staðar á landinu eða erlendis. Rúm 3% á Vesturlandi, tæpt 1% á Vestfjörðum, rúm 17% á Norðurlandi, rúm 2% á Austfjörðum, rúm 5% á Suðurlandi og um 1% erlendis.
Einingar
Að meðaltali tekur hver nemandi 4,9 einingar.
Samantekt
Meðalfjarnemandinn okkar er því rúmlega 21 árs kona sem býr í Grafarvoginum og tekur hún tvo áfanga í fjarnámi á önninni.