Vorönn 2020
Fjöldi
Á vorönn 2020 eru 407 nemendur skráðir í fjarnám við Verzlunarskóla Íslands. Af þessum 407 fjarnemendum eru:
- 68 (16,7%) nemendur grunnskóla
- 96 (23,6%) nemendur í dagskóla Verzlunarskólans
- 123 (30,3%) nemendur annarra framhaldsskóla
- 2 ( 0,5%) nemandi háskóla
- 117 (28,8%) ekki skráðir í skóla.
Kyn
Af 407 fjarnemendum eru konur 233 (57,3%) og karlar 174 (42,7%).
Aldur
Meðalaldur fjarnemenda er 20,8 ár.
Yngsti fjarnemandinn er fæddur um sumar 2007 og verður því 13 ára á þessu ári, það er stúlka sem stundar nám í þýsku. Næst yngsti fjarnemandinn er fæddur síðla sumars árið 2006, en það er piltur sem stundar nám í spænsku. Þriðji yngsti fjarnemandinn er fæddur að hausti árið 2006, en það er stúlka sem stundar nám í ensku og þýsku.
Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1945, en það er kona sem leggur stund á spænsku. Næst elsti fjarnemandinn er kona sem er fædd 1958, en hún stundar einnig nám í spænsku.
Á milli elsta og yngsta fjarnemandans er 62 ára aldursmunur.
Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að tæplega 60% (58,9%) fjarnemenda eru fæddir á árunum 1999, 2000, 2001, 2002 og 2003, en það eru nemendur sem eru á hefðbundunum framhaldsskóla aldri og tveir árgangar til viðbótar sem væntanlega er á sínu fjórða og fimmta ári í framhaldsskóla:
- Fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 2001 (79 nemendur, 19,5%), en það eru nemendur sem nú eru væntanlega á þriðja ári í framhaldsskóla.
- Næst fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 2002 (57 nemendur, 14,0%), en það eru nemendur sem nú eru væntanlega á öðru ári í framahaldsskóla.
- Þriðji fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 2004 (50 nemenduri, 12,3%), en það eru nemendur sem nú eru væntanlega í efsta bekk grunnskóla.
- Fjórði fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 2003 (48 nemendur, 11,8%), en það eru nemendur sem nú eru væntanlega á fyrsta ári í framhaldsskóla.
- Fimmti fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 2000 (37 nemendur, 9,1%), en það eru nemendur sem nú eru væntanlega á fjórða ári í framhaldsskóla.
Sjá nánar á þessari mynd:
Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á vorönn 2020.
Búseta
Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá, búa flestir fjarnemendur í 210, næst flestir í 105 og síðan 200, 112, 220, 110 og 107.
Tæplega 84% fjarnemenda búa í póstnúmerum á bilinu frá 100-271, en rúmlega 16% annars staðar á landinu eða erlendis. Tæplega 2% á Vesturlandi, um 1% á Vestfjörðum, um 8% á Norðurlandi, um 2% á Austfjörðum, um 3% á Suðurlandi og um 3% erlendis.
Einingar
Að meðaltali tekur hver nemandi 7,6 nýjar framhaldsskólaeiningar.
Samantekt
Meðalfjarnemandinn okkar er því tæplega 21 árs kona sem býr í Garðabæ og tekur hún tæplega tvo áfanga í fjarnámi á önninni.