Nemendur í fjarnámi VÍ á vorönn 2009
Fjarnemendur á vorönn 2009
Fjöldi
Á vorönn 2009 eru 895 nemendur skráðir í fjarnám hjá Verzlunarskóla Íslands og er þetta fjölmennasta fjarnámsönnin til þessa. Af þessum fjölda eru 136 (15,4%) líka í dagskóla Verzlunarskólans og 113 (12,6%) eru líka í grunnskólum landsins.
Kyn
Af 875 fjarnemendum eru konur 543 (60,7%) og karlar 352 (39,3%).
Aldur
Meðalaldur fjarnemenda er 23,6 ár. Yngsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1997, það er piltur sem stundar nám í vélritun og verður hann 12 ára í næstu viku. Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1930, herramaður sem leggur stund á spænsku. Á milli þessara nemenda er 67 ára aldursmunur. Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að:
- Fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1989 (128 nemendur), en það eru nemendur sem eru núna á fjórða ári í framhaldsskóla.
- Næst fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1990 (112 nemendur), en það eru nemendur sem eru núna á þriðja ári í framhaldsskóla.
- Þriðji of fjórði fjölmennustu árgangarnir eru nemendur fæddir 1993 og 1988 (79 nemendur). Nemendur fæddir 1993 eru núna í 10. bekk grunnskóla og nemendur fæddir 1988 eru trúlega flestir á fimmta ári í framhaldsskóla.
Sjá þessa mynd:
Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á vorönn 2009.
Búseta
Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá, búa flestir fjarnemendur í 112, næst flestir í 200 og 220 og svo 110 og 105.
Um 68% fjarnemenda búa í póstnúmerum á bilinu frá 100-270. Um 32% nemenda býr annars staðar á landinu eða erlendis: Tæp 4% á Vesturlandi, tæp 2% á Vestfjörðum, rúm 9% á Norðurlandi, rúm 2% á Austfjörðum, rúm 7% á Suðurlandi og um 2% erlendis.
Einingar
Fjarnemendur vorannar eru skráðir í 1908 áfanga, en það eru 2,2 áfangar á hvern nemanda. Að meðaltali tekur hver nemandi rúmlega 6 einingar.
Samantekt
Meðalfjarnemandinn okkar er því tæplega 24 ára gömul kona sem býr í Grafarvogi og tekur hún tvo þriggja eininga áfanga.