Nemendur í fjarnámi VÍ á vorönn 2011
Fjarnemendur á vorönn 2011
Fjöldi
Á vorönn 2011 eru 715 nemendur skráðir í fjarnám við Verzlunarskóla Íslands og er þetta fámennasta vorönn síðan 2007. Af þessum 715 fjarnemendum eru:
- 46 (6,4%) nemendur grunnskóla
- 157 (22,0%) nemendur í dagskóla Verzlunarskólans
- 217 (30,3%) nemendur annarra framhaldsskóla
- 295 (41,3%) ekki skráðir í skóla.
Kyn
Af 715 fjarnemendum eru konur 426 (59,6%) og karlar 289 (40,4%).
Aldur
Meðalaldur fjarnemenda er 22,6ár.
Yngsti fjarnemandinn er fæddur í október 1997 og verður hann því 14 ára á þessu ári. Það er piltur sem stundar fjarnám í ensku 403. Auk hans er einn annar fjarnemandi fæddur árið 1997. Það er stúlka sem stundar nám í ensku 203 og þýsku 103. Þessir nemendur eiga það sameiginlegt að hafa búið áður í ensku- og/eða þýskumælandi landi.
Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1951, en það er karlmaður sem leggur stund á þýsku. Næst elsti fjarnemandinn er karlmaður fæddur 1952, en hann leggur stund á alþjóðafræði, ensku og markaðsfræði. Þessi nemandi lauk verslunarprófi frá skólanum á sínum tíma og stefnir á stúdentspróf af alþjóðasviði frá skólanum.
Á milli elsta og yngsta fjarnemandans er 46 ára aldursmunur.
Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að um helmingur nemenda er fæddur á árunum 1991, 1992, 1993 og 1994, en það eru nemendur sem eru á hefðbundnum framhaldsskólaaldri:
- Fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1991 (121 nemandi, 16,9%), en það eru nemendur sem nú eru væntanlega á fjórða ári í framhaldsskóla.
- Næst fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1992 (113 nemendur, 15,8%), en það eru nemendur sem nú eru væntanlega á þriðja ári í framahaldsskóla.
- Þriðji fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1990 (70 nemendur, 9,8%), en að eru nemendur sem nú eru væntanlega á fimmta ári í framhaldsskóla.
- Fjórði fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1993 (63 nemendur, 8,8%), en það það eru nemendur sem nú eru væntanlega á öðru ári í framhaldsskóla.
- Fimmti fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1994 (57 nemendur, 8,0%), en það eru nemendur sem nú eru væntanlega á fyrsta árið í framhaldsskóla.
Sjá nánar á þessari mynd:
Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á vorönn 2011.
Búseta
Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá, búa flestir fjarnemendur í 200, næst flestir í 108, 112, 220, 110, 105, 107 og 300.
Um 73% fjarnemenda býr í póstnúmerum á bilinu frá 100-271, en um 27% nemenda annars staðar á landinu eða erlendis. Tæp 5% á Vesturlandi, tæp 2% á Vestfjörðum, rúm 7% á Norðurlandi, tæp 3% á Austfjörðum, rúm 8% á Suðurlandi og um 3% erlendis.
Einingar
Að meðaltali tekur hver nemandi 5,5 einingar.
Samantekt
Meðalfjarnemandinn okkar er því tæplega 23 ára kona sem býr í Kópavogi og tekur hún tvo áfanga á vorönn 2011.