Nemendur í fjarnámi VÍ á vorönn 2014
Fjarnemendur á vorönn 2014
Fjöldi
Á vorönn 2014 eru 673 nemendur skráðir í fjarnám við Verzlunarskóla Íslands. Af þessum 673 fjarnemendum eru:
- 72 (10,7%) nemendur grunnskóla
- 172 (25,6%) nemendur í dagskóla Verzlunarskólans
- 172 (25,6%) nemendur annarra framhaldsskóla
- 5 ( 0,7%) nemandi háskóla
- 252 (37,4%) ekki skráðir í skóla.
Kyn
Af 673 fjarnemendum eru konur 384 (57,1%) og karlar 289 (42,9%).
Aldur
Meðalaldur fjarnemenda er 22,3ár.
Yngsti fjarnemandinn er fæddur í ágúst 2000 og verður hann því 14ára á þessu ári, það er stúlka sem stundar nám í spænsku. Næst yngsti fjarnemandinn er þremur vikum eldri, en það er stúlka sem stundar nám í ensku. Auk þeirra eru þrír aðrir nemendur fæddir árið 2000.
Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1945, en það er kona sem leggur stund á ensku. Næst elsti fjarnemandinn er kona sem er fædd 1946, en hún stundar nám í spænsku.
Á milli elsta og yngsta fjarnemandans er 55 ára aldursmunur.
Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að tæplega 60% nemenda eru fæddir á árunum 1993, 1994, 1995 og 1996 og 1997 en það eru nemendur sem eru á hefðbundunum framhaldsskóla aldri og einn árgangur sem væntanlega er á sínu fimmta ári í framhaldsskóla:
- Fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1994 (112 nemendur, 16,6%), en það eru nemendur sem nú eru væntanlega á fjórða ári í framhaldsskóla.
- Næst fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1995 (99 nemendur, 14,7%), en það eru nemendur sem nú eru væntanlega á þriðja ári í framahaldsskóla.
- Þriðji fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1996 (80 nemendur, 11,9%), en það eru nemendur sem nú eru væntanlega á öðru ári í framhaldsskóla.
- Fjórði fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1993 (60 nemendur, 8,9%), en það það eru nemendur sem nú eru væntanlega á fimmta ári í framhaldsskóla.
- Fimmti fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1997 (48 nemendur, 7,1%), en það eru nemendur sem nú eru væntanlega á fyrsta árið í framhaldsskóla.
Sjá nánar á þessari mynd:
Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á vorönn 2014.
Búseta
Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá, búa flestir fjarnemendur í 108, næst flestir í 200 og síðan í 112, 105, 110, 101, 600, 220, 300, 210, 109 og 104.
Um 75% fjarnemenda búaí póstnúmerum á bilinu frá 100-271, en um 25% nemenda búa annars staðar á landinu eða erlendis. Tæp 5% á Vesturlandi, rúmt 1% á Vestfjörðum, tæp 9% á Norðurlandi, rúm 2% á Austfjörðum, tæp 5% á Suðurlandi og um 3% erlendis.
Einingar
Að meðaltali tekur hver nemandi 5,4 einingar.
Samantekt
Meðalfjarnemandinn okkar er því tæplega 23 ára kona sem býr í 108 Reykjavík og tekur hún tvo áfanga í fjarnámi á önninni.