Gestir frá Eistlandi Posted september 15, 2009 by avista Evrópsk vika verður hjá 5.-B og hluta af 5.-A dagana 11.-18. september. 25 Eistar frá menntaskóla í Tallinn ásamt tveimur kennurum eru í heimsókn hjá þeim. Þessi nemendaskipti byrjuðu síðastliðið vor þegar íslensku nemendurnir fóru til Tallinn ásamt tveimur kennurum og dvöldu þar í viku. Nú eru Eistarnir að endurgjalda heimsóknina og eru nemendur… Read more »
Brautskráning Posted september 15, 2009 by avista Þann 7. september síðastlinn voru tveir nemendur útskrifaðir frá Verzlunarskóla Íslands. Það voru þeir Ernir Skorri Pétursson og Daníel Þór Irvine. Þeir luku báðir námi í fjarnámi nú í sumar. Verzlunarskólinn óskar þeim og aðstandendum þeirra til hamingju með áfangann.
Kennarar og nemendur tefla Posted september 10, 2009 by avista Nokkrir nemendur komu að máli við skólastjóra og fóru þess á leit við hann að skólinn keypti taflborð fyrir nemendur eða aðstoðaði þá við slík kaup. Skólastjóri tók vel í það með því skilyrði að nemendur skoruðu á kennara í einvígi. Fór keppnin fram í hádeginu þann 9.9. og lauk með sigri nemenda. Fóru… Read more »
Ritara og skrifstofustjóranám Posted september 2, 2009 by avista Námið er í samvinnu Framvegis og Verzlunarskóla Íslands og er blanda af staðbundnu námi í Verzlunarskólanum og fjarnámi. Námið er einingabært (22 einingar) og dreifist á þrjár annir. Staðbundnar lotur eru 3x tveir virkir dagar á hverri önn og fjarnámið er stundað þess á milli. Sjá nánar hér .
Danskir verslunarskólanemendur í heimsókn Posted september 29, 2009 by avista Undanfarin ár hafa Verzlunarskólinn og Århus Købmandsskole unnið að samstarfsverkefni í formi nemendaskipta. Hefur bekkur frá Århus komið að hausti ár hvert til Íslands og nemendur úr Versló hafa síðan endurgoldið heimsóknina að vori. Þetta skólaár tekur 31 nemandi í fjórða bekk þátt í þessu verkefni á vegum Verzlunarskólans. Þeir eru gestgjafar eins Dana í… Read more »