Hafragrautur Posted október 6, 2009 by avista Hafragrautur Frá og með deginum í dag, 6.október, mun Verzlunarskóli Íslands bjóða nemendum sínum upp á hafragraut á morgnana. Hann verður framreiddur á Marmaranum í korters-hléinu. Það er von skólans að nemendur taki þessari nýbreytni vel og njóti grautarins.
Hafragrautur Posted október 6, 2009 by avista Frá og með deginum í dag, 6.október, mun Verzlunarskóli Íslands bjóða nemendum sínum upp á hafragraut á morgnana. Hann verður framreiddur á Marmaranum í korters-hléinu. Það er von skólans að nemendur taki þessari nýbreytni vel og njóti grautarins.
Úrslit í landskeppni eTwinning fyrir skólaárið 2008-2009 Posted október 19, 2009 by avista Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra veitti Hildu Torres, spænskukennara, verðlaun í flokki framhaldsskóla í landskeppni eTwinning verkefna fyrir skólaárið 2008 – 2009. Verkefni Hildu hét Are we so different? ¿Y tú cómo vives? og í umsögn dómnefndar má lesa eftirfarandi: „Viðamikið og flott verkefni og ljóst að þátttakendur hafa lagt mikla alúð og vinnu við það, bæði… Read more »
Vottorð vegna veikinda Posted október 16, 2009 by avista Tilkynning til starfsfólks og nemenda Verzlunarskólans. Vegna mikils álags á heilsugæslustöðvum þurfa nemendur ekki að skila vottorðum vegna veikinda sinna. Tilkynna þarf veikindi á skrifstofu skólans fyrir klukkan 9:30 alla þá daga sem veikindin standa yfir. Athugið að um tímabundna aðgerð er að ræða sem verður endurskoðuð í upphafi hverrar viku. Fylgist því vel með.
Gestir frá Frakklandi Posted október 12, 2009 by avista 25 nemendur og 2 kennarar frá Lycée Fulbert í Chartres í Frakklandi heimsækja 5. bekk dagana 12. – 18. október. Heimsókn þessi er upphafið á samstarfi skólanna tveggja og munu íslensku nemendurnir endurgjalda heimsóknina næsta vor og dvelja í Chartres í eina viku. Þetta er í annað sinn sem Verzlunarskólinn vinnur með Lycée Fulbert. … Read more »
Lokafundur í RetAiL Posted október 7, 2009 by avista Verzlunarskóli Íslands hefur í tæp tvö ár stýrt Leonardo da Vinci verkefninu ‘Retail Management for Adults in Lifelong Learning – RetAiL’. Verkefninu lýkur um næstu áramót og þessa dagana er lokafundur verkefnisins haldinn hér í skólanum. RetAiL er fjarnámsefni í verslunarstjórnun, ætlað fólki 18 ára eða eldra sem unnið hefur í verslun í… Read more »
Hafragrautur Posted október 6, 2009 by avista Frá og með deginum í dag, 6.október, mun Verzlunarskóli Íslands bjóða nemendum sínum upp á hafragraut á morgnana. Hann verður framreiddur á Marmaranum í korters-hléinu. Það er von skólans að nemendur taki þessari nýbreytni vel og njóti grautarins.