Ferð 5-A til Brussel. Posted september 27, 2010 by avista Mánudaginn 27.september mun 5-A fara til Brussel ásamt 2 kennurum. Þau munu dvelja þar í 5 daga og heimsækja ýmsar stofnanir. Farið verður í heimsókn til Evrópuráðsins, í Evrópuþingið og á skrifstofu stækkunarnefndarinnar. Einnig verður EFTA sótt heim og Þróunarsjóður EFTA sem og skrifstofur NATO. Íslenska sendiráðið mun einnig taka á móti nemendunum og… Read more »
Gestir frá Spáni Posted september 8, 2010 by avista Síðastliðið vor fóru 26 nemendur í spænsku í Verzlunarskólanum ásamt tveimur kennurum í nemendaheimsókn til Madridar á Spáni. Heimsóknin var liður í alþjóðlegu verkefni í Etwinning ; How’s life over there?/ Y tú ¿Cómo vives? Markmið verkefnisins er að rannsaka lifnaðarhætti ungra Spánverja og Íslendinga í dag og til að komast að því hvað… Read more »
Útskrift Posted september 3, 2010 by avista Föstudaginn 3. september 2010 voru 6 nemendur útskrifaðir með stúdentspróf frá Verzlunarskóla Íslands. Það eru þau Guðrún Sif Hilmarsdóttir, Gunnar Páll Halldórsson, Hanna María Marteinsdóttir, Sigrún Ýr Hjörleifsdóttir, Tanja Ýr Theodórsdóttir og Þorvarður Örn Einarsson. Skólinn óskar þeim innilega til hamingju með áfangann.
Nýnemaferð Posted september 1, 2010 by avista Föstudaginn 3. september munu eldri nemendur skólans bjóða nýnema velkomna í skólann með sínum hætti. Eins og undanfarin tvö ár verður farið í sólarhringsferð sem skemmtinefnd Nemendafélagsins skipuleggur og stýrir, undir handleiðslu starfsfólks. Nemendur verða sóttir í heimastofur sínar klukkan 11:20 og leiddir niður á marmara og síðan ekið sem leið liggur til Stokkseyrar. … Read more »