Berlín og Madríd heimsótt
Tveir hópar nemenda í 5. bekk á alþjóða- og málabraut Verzlunarskóla Íslands eru um þessar mundir staddir í Berlín og Madrid. Á ferðum sínum munu nemendur heimsækja bæði framhaldsskóla og menningarstofnanir.
Gunnar Gunnarsson í heimsókn
Fimmtudaginn 20. september heimsótti Gunnar Gunnarsson nemendur og kennara í skákvalinu í 6. bekk í stofu 201. Gunnar lauk verslunarprófi frá VÍ fyrir 60 árum, varð Íslandsmeistari í knattspyrnu í meistaraflokki með Val fjórum árum seinna, eða 1956, og síðan Íslandsmeistari í skák 1966. Þá var hann forseti Skáksambands Íslands um árabil.
Skáldaslóð í Þingholtum

Nemendur í 6. bekk hafa á undanförnum dögum farið með íslenskukennurum sínum í vettvangsferð um Þingholtin. Á göngunni fræðast þeir um skáldin okkar; lesa úr verkum þeirra eða syngja ljóð og anda að sér sögunni.
Íþróttaálfur og heilsuganga
Það var blíðskaparveður þegar nemendur og starfsfólk Verzlunarskóla Íslands fóru í dag í tæplega 3 km. heilsugöngu. Gangan er liður í verkefninu heilsuefling framhaldsskóla, en hreyfing er í forgrunni verkefnisins skólaárið 2012/2013.
Hraði og hreyfing á miðvikudegi
Heilsuefling Verzlunarskólans heldur áfram og nú er komið að því að ræsa næsta hluta formlega, hreyfinguna. Miðvikudaginn 19. september verður kennt samkvæmt stundaskrá hraða og hreyfingu til hádegis. Fyrstu þrjár kennslustundirnar verða 40 mínútur að lengd en síðasti tíminn fyrir hádegi verður nýttur til útiveru. Mynd af stundaskránni fylgir fréttinni.
Ragnar Már sigraði á sterku golfmóti
Ragnar Már Garðarsson, nemendi í 4-U, bar í gær sigur úr býtum á Duke of York-golfmótinu. Það þykir mikið afrek að vinna mótið, en það er eitt sterkasta unglingamót sem haldið er á hverju ári.
Nýnemaball í Vodafonehöllinni
Nýnemar boðnir velkomnir
Föstudaginn 7. september voru nýnemar skólans boðnir velkomnir í Verzlunarskóla Íslands. Nýnemavígslan í ár var með öðru sniði en undanfarið því í staðinn fyrir að niðurlægja nýnema var þeim boðið upp á mjólk og kökur.
Foreldrafundur miðvikudaginn 5. september

Foreldrafundur fyrir foreldra/forráðamenn nýnema verður haldinn í skólanum miðvikudaginn 5. september klukkan 20:00.