20. jún. 2013 : Sumarlokun

versloSkrifstofur skólans verða lokaðar frá föstudeginum 21. júní til kl. 8:00 miðvikudaginn 7. ágúst.

Sumarönn fjarnáms er í gangi og hægt er að hafa samband við fjarnámsstjóra með því að senda póst á fjarnam@verslo.is. Hægt er að sækja um fjarnám á sumarönn til 1. júlí. Fjarnámspróf hefjast 6. ágúst. Sjá nánar próftöflu fjarnáms.

 

Skólinn verður settur 21. ágúst kl. 10:00 í hátíðarsal skólans.

11. jún. 2013 : Þorbjörn Sigurbjörnsson kennari maí mánaðar

tobbiÞorbjörn Sigurbjörnsson var valinn kennari maí mánaðar hjá Félagi framhaldsskólakennara. Þorbjörn kennir viðskiptagreinar hér í Verzlunarskólanum, en Þorbjörn var einn þeirra sem kenndi nemendum í 6. bekk á hagfræði- og viðskiptabraut sem unnu m.a. öll verðlaunin í verkefninu „fyrirtækjasmiðjan“ á vegum Ungra frumkvöðla nýverið.

 

Hér er hægt að nálgast myndband af Þorbirni, þar sem hann ræðir m.a. viðhorf sín til náms og kennslu.