Month: febrúar 2016

Verslingar vinna ensku ræðukeppnina

Tveir nemendur Verzlunarskólans urðu í fyrsta og öðru sæti í landskeppni ensku ræðukeppninnar á vegum ESU, sem haldin var í Háskólanum í Reykjavík sl. laugardag.  Tinna Líf Jörgensdóttir varð í fyrsta sæti og Benedikt Bjarnason í öðru sæti.  Stefán Ás Ingvarsson komst í sex manna úrslit. Versló átti alls sex keppendur af fimmtán, og stóðu þeir… Read more »

Vinningshafar í edrúpottinum

Búið er að draga úr edrúpottinum og eru vinningshafar eftirfarandi: Karen Lárusdóttir 1-A 10.000 kr, frá foreldraráði VÍ Jónína Melsteð Margrétardóttir 1-B 10.000 kr, frá foreldraráði VÍ Sólveig María Sölvadóttir 1-B 10.000 kr, frá foreldraráði VÍ Steinar Guðlaugsson 1-F 10.000 kr, frá foreldraráði VÍ Aron Ás Kjartansson 1-R – 10 máltíðakort í Matbúð Sveinn Ísak… Read more »

Nemendamót VÍ

Fyrsti fimmtudagur febrúarmánaðar er ævinlega stór dagur í lífi Verzlinga en þann dag fer árlegt Nemendamót VÍ fram. Nemendamótsdagurinn er órjúfanlegur hluti skólans og hefðin sem honum fylgir mikil. Þessi dagur er hápunktur félagslífsins og eðlilega miklar væntingar sem honum fylgja. Algengt er að bekkirnir byrji daginn snemma og hittist yfir morgunverði í heimahúsi áður en… Read more »

Gleðidagur VÍ

Miðvikudaginn 3. febrúar er Gleðidagur VÍ. Hefðbundin kennsla verður í fyrsta tíma en eftir það taka við fyrirlestrar, örnámskeið og ýmsar skemmtilegar uppákomur. Dagskráin einkennist af mikilli fjölbreytni og því ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. 1. ársnemar byrja strax í fyrsta tíma á að hlýða á fyrirlestur um jafnrétti og kynlífsmenningu í… Read more »