Aukakynning í Versló 6. apríl kl: 13:00
Þann 6. apríl verður aukakynning í Verzlunarskólanum fyrir þá 10. bekkinga sem ekki komust á Opna húsið.
Mæting í Rauða sal kl: 13:00. Salurinn er á fyrstu hæð skólans og óþarfi er að skrá sig.
Boðið verður upp á skoða húsakynni skólans.

Frakkar í heimsókn
Dagana 24. mars til 1. apríl eru 22 nemendur frá menntaskólanum Lycée Chateaubriand í Rennes Frakklandi í heimsókn. Þeir eru gestir nemenda í Verzló sem valið hafa frönsku sem þriðja mál.
Með í för eru tveir kennarar. Markmiðið með heimsóknunum er að nemendur kynnist landi og þjóð gestgjafa sinna. Um helgina voru frönsku nemendurnir alfarið í umsjá gestgjafa sinna en í þessari viku fylgjast þeir með skólalífinu og heimsækja helstu ferðamannastaði í nágrenni Reykjavíkur. Ekki er annað að heyra af gestum okkar en að þeir séu alsælir með móttökurnar og njóta dvalarinnar. Nemendur okkar munu síðan sækja Frakkana heim næsta haust.
Frönskukeppni
Frönskukeppni grunn- og framhaldsskóla var haldin laugardaginn 25. mars, kl. 14.00 í húsakynnum Alliance française, Tryggvagötu af tilefni viku franskrar tungu.
Keppnin er haldin í samvinnu Félags frönskukennara á Íslandi, Sendiráðs Frakklands á Íslandi og Alliance française á Íslandi.
Þema keppninnar í ár var « Les arts et le français » og voru þátttakendur hvattir til að fjalla um efnið frá persónulegu sjónarhorni.
Var keppnin tvískipt, 13 þátttakendur komu úr grunnskólum og 10 úr framhaldsskólum.
Keppendur tóku flutning sinn upp á myndband og mátti leika sér með formið að vild; myndskreyta, leika, syngja og dansa. Myndbandið mátti ekki vera styttra en tvær mínútur og ekki lengra en fjórar mínútur.
Að auki skrifuðu keppendur 50-100 orða texta þar sem þeir útskýrðu nálgun sína að efninu.
Sigurvergari í Framhaldsskóla keppninni var Katrín María Timonen 5-A sem fjallaði í sínu myndbandi um Marius Petipa (1818 – 1910) , franskan danshöfund sem hafði mikil áhrif á ballet víðsvegar um heiminn. Hreppti hún að launum flugmiða til Parísar.
Við óskum Katrínu Maríu til hamingju!

Edrúpottur
Búið er að draga úr edrúpottinum og eru vinningshafar eftirfarandi:
1.bekkur
Nökkvi Norðfjörð 1-T Matarkort
Atli Ívar Sævarsson 1-H 10.000 gjafarbréf frá foreldraráði
Arnór Aðalsteinsson 1-U 10.000 gjafarbréf frá foreldraráði
Halldór Benedikt Haraldsson 1-E 10.000 gjafarbréf frá foreldraráði
Hilma Jakobsdóttir 1-R 10.000 gjafarbréf frá foreldraráði
Karitas Ýr Jakobsdóttir 1-S 10.000 gjafarbréf frá foreldraráði
Aþena Karaolani 1-D 10.000 gjafarbréf frá foreldraráði
Ragna B. Steingrímsdóttir 1-U 2 miðar á næsta ball
2.bekkur
Mikael Emil Kaaber 2-B 10.000 gjafarbréf frá foreldraráði
Lena Lísbet Kristjánsdóttir 2-R 10.000 gjafarbréf frá foreldraráði
Karen Jacobsen 2-B 10.000 gjafarbréf frá foreldraráði
Kristín Rós Björnsdóttir 2-A 10.000 gjafarbréf frá foreldraráði
Sóley Ósk Hilmarsdóttir 2-T 2 miðar á næsta ball
Halla Vigdís Hálfdánardóttir 2-H 10.000 gjafarbréf frá foreldraráði
Helga María Reynisdóttir 2-H 10.000 gjafarbréf frá foreldraráði
Selma Kristín Gísladóttir 2-B Matarkort
5.bekkur
Guðfinna Kristín Björnsdóttir 5-X 10.000 gjafarbréf frá foreldraráði
Tristan Alex Jónsson 5-D 10.000 gjafarbréf frá foreldraráði
Sindri Þór Ingimarsson 5-X Matarkort
Elena Brynjarsdóttir 5-S 2 miðar á næsta ball
Sigurður Darri Rafnsson 5-H 10.000 gjafarbréf frá foreldraráði
Kristján Guðjónsson 5-Y 10.000 gjafarbréf frá foreldraráði
Valur Elli Valsson 5-H 10.000 gjafarbréf frá foreldraráði
Birkir Valur Jónsson 5-E 10.000 gjafarbréf frá foreldraráði
6.bekkur
Einar Karl Jónssn 6-H 15.000 gjafarbréf frá foreldraráði
Arna María Vignisdóttir 6-T 15.000 gjafarbréf frá foreldraráði
Ari Páll Karlsson 6-A 15.000 gjafarbréf frá foreldraráði
Víkingur Goði Sigurðarson 6-X 15.000 gjafarbréf frá foreldraráði

Landskeppni framhaldsskólanna í líffræði
Landskeppni framhaldsskólanna í líffræði var haldin 25. janúar síðastliðinn. Landskeppni framhaldsskólanna í líffræði er haldin ár hvert í öllum framhaldsskólum landsins. Landskeppnin hefur það að markmiði að efla áhuga og þátttöku íslenskra menntaskólanema í líffræði. Þreytt voru fræðileg og verkleg próf í Öskju og Læknagarði. Röð keppenda byggir á stigafjölda í fræðilegum og verklegum prófum auk mats á verklegum vinnubrögðum. Þeim 4 nemendum sem ná bestum árangri verður svo boðið að taka þátt í Ólympíkeppni í líffræði sem í ár mun fara fram í Englandi.
1. Bjarni Ármann Atlason, VÍ
2. Viktor Ingi Ágústsson, VÍ
3. Mikael Snær Gíslason, FNV
4. Védís Mist Agnadóttir, MR
Við óskum Bjarna Ármanni og Viktori Inga og öllum keppendum til hamingju með árangurinn.
Opið hús
Fimmtudaginn 23. mars verður Verzlunarskóli Íslands opinn fyrir nemendur 10. bekkjar og forráðamenn þeirra á milli kl. 17.00 - 19.00. Sérstök áhersla verður lögð á að kynna námsframboð, þá aðstöðu sem stendur til boða og félagslífið. Skólastjórnendur, kennarar og námsráðgjafar verða á staðnum til að taka á móti gestum og svara spurningum og munu nemendur bjóða upp á leiðsögn um skólann. Bókasafn skólans verður opið gestum og eru allir hjartanlega velkomnir þangað.