
Jólaleyfi
Skólanum verður lokað 20. desember klukkan 15.00 vegna jólaleyfis og hann opnaður aftur mánudaginn 6. janúar klukkan 8:00. Skrifstofan verður opin milli 8 og 10 en lokar þá til klukkan 12 vegna starfsmannafundar. Nemendur mæta í sínar heimastofur klukkan 13:00 og hitta þar kennara sína. Nemendur eru hvattir til þess að ljúka bókakaupum sínum.
Sala á bókum og heftum sem ekki eru seld í bókabúðum fer fram á Bókasafni VÍ (4 hæð). Bóksalan verður opin á eftirfarandi tíma:
6. janúar | 12:30-16:00 |
7. janúar | 8:00-16:00 |
8. janúar | 8:00-16:00 |
9. janúar | 8:00-16:00 |

Útskrift
Fimmtudaginn 19.desember var einn nemandi útskrifaður með stúdentspróf frá Verzlunarskóla Íslands. Það er hann Júlíus Magnússon. Skólinn óskar honum innilega til hamingju með áfangann.

Birting einkunna og prófsýning
Lokaeinkunnir haustannar verða aðgengilegar í INNU klukkan 20.00 fimmtudaginn 19. desember. Á sama tíma verða bókalistar og stundatöflur næstu annar aðgengilegar. Foreldrum/forráðamönnum er bent á að fara á INNU og skoða námsferil barna sinna. Nemendur sem eru orðnir 18 ára geta opnað fyrir foreldraaðgang hjá sér í Innu.
Prófsýning fer fram föstudaginn 20. desember milli 8:30 og 10:00. Nemendur sem falla í áfanga eru sérstaklega hvattir til að mæta og skoða prófúrlausnir sínar því skrifstofa skólans lokar klukkan 15:00 þennan sama dag og opnar ekki aftur fyrr en mánudaginn 6. janúar.

Erasmus+ Strenghts and Weaknesses in the Media - fundur í Schleswig dagana 8.-14. desember
Samstarfsskólar Verzlunarskóla Íslands í verkefninu, Erasmus+ Strenghts and Weaknesses in the Media eru frá Þýskalandi, Búlgaríu, Króatíu og Ungverjalandi. Eins og heiti verkefnisins gefur til kynna fjallar það um styrkleika og veikleika fjölmiðla og netmiðla. Nemendur vinna ýmis konar verkefni þar sem markmiðið er að hjálpa þeim t.d. að bera kennsl á falsfréttir og auka netmiðlalæsi þeirra. Fundinn sóttu sex nemendur í 3-B ásamt tveimur kennurum. Síðasti fundurinn í þessu tveggja ára verkefni verður svo haldinn á Íslandi í lok mars.

Ráðstafanir vegna veðurviðvörunar þriðjudaginn 10.12.2019 og miðvikudaginn 11.12.2019
Skólanum verður lokað klukkan 15:00 í dag 10. desember vegna veðurs.
Skólinn opnar klukkan 10:00 miðvikudaginn 11. desember.
Skv. veðurspám á mesti veðurofsinn að hafa gengið yfir á hádegi á morgun, miðvikudag, og því verður þriggja tíma seinkun á prófum í dagskólanum.
11. des | nýr próftími | |
---|---|---|
TÖLV2RT05 | kl: 11:30 | fyrra holl |
TÖLV2RT05 | kl: 14:00 | seinna holl |
SAGA3MH05 | kl: 14:00 | |
LÍFF2LE05 | kl:14:00 | |
STÆR2LT05 | kl:14:00 | |
ÍSLE3NB05 | kl:14:00 |
Fjarnámspróf hefjast klukkan 14:00.

Fjarnámspróf verða klukkan 11:00 í dag
Fjarnámsprófin sem áttu að vera klukkan 14:00 í dag verða klukkan 11:00 vegna slæmrar veðurspár.

Sýning hjá nemendum í sjónlistahópi
Föstudaginn, 29. nóvember opnuðu nemendur sjónlistahóps í 2. -B yfirlitssýningu með verkefnum sínum sem þau hafa unnið á önninni í sjónlistaáfanganum LIGR2SL. Sýningin er í stigaganginum vestan megin í húsinu og verður hún á stigapöllunum á milli 2. og 3. hæðar og 3. og 4. hæðar. Sýningin mun standa til 6. desember og því hægt að kíkja við þegar hentar. Í áfanganum hafa nemendur kíkt á hin ýmsu svið sjónlista. Þau hafa teiknað sjálfsmyndir, endurunnið flíkur, tekið ljósmyndir, málað málverk o.fl.

Myndir frá sýningu nemenda á lokaverkefnum sínum í starfrænni smiðju
Í dag, þriðjudaginn 3. desember opnuðu nemendur í 1.B og nemendur í vali á 3ja ári, sýningu í lokaverkefnum sínum unnin í stafrænni smiðju, áfanganum HÖNN2FB. Sýningin er haldinn í stofu 2 á 4. hæð.