
Andlát
Guðbjörg Tómasdóttir, var dönskukennari við Verzlunarskóli Íslands um árabil. Guðbjörg naut mikillar virðingar innan skólans, bæði meðal samstarfsfólks og nemenda. Í góðum hópi dönskudeildarinnar fór fram einstaklega gefandi og uppbyggilegt samstarf og þar lagði Guðbjörg ætíð sín lóð á vogaskálarnar. Vinnuherbergi dönskudeildar umlukti víðfeðmt og skapandi samfélag, sem að mestu snerist um unglinga og kennslu, en líka innihaldsríkar samræður um áhugamál og einkalíf.

Andlát
Steinunn I. Stefánsdóttir bókasafnsfræðingur er látin. Hún lést 12. nóvember síðastliðin 75 ára að aldri. Árið 1985 var Steinunn ráðin til starfa við Verzlunarskóla Íslands og fékk það hlutverk að byggja upp framtíðarbókasafn skólans. Henni tókst vel til verka og var mikil ánægja með safnið en fram að þessu höfðu nemendur viðhaft ýmsar tilraunir til að koma á bókasafni við skólann. Árið 2004 var síðan nýtt bókasafn tekið í notkun þar sem tæplega 400 fermetra viðbygging var byggð ofan á gamla safnið. Steinunn sá einnig um uppbyggingu þess safns og tókst afar vel til. Bókasafnið átti hug hennar allan og naut hún mikilla vinsælda meðal nemenda og starfsfólks. Steinunn kenndi jafnframt upplýsingatækni við skólann en hér var um brautryðjendastarf að ræða þar sem upplýsingatækni hafði ekki verið áður kennd við framhaldsskóla á Íslandi.

Nýtt kennslufyrirkomulag
Kennsla mun hefjast að nýju í húsnæði skólans miðvikudaginn 18. nóvember. Kennslufyrirkomulagið frá því í haust mun aftur taka gildi, þ.e. kennsla mun ýmist fara fram í skólanum eða heima í gegnum TEAMS.
Til þess að geta uppfyllt þau ströngu sóttvarnarsjónarmið sem nú eru í gildi er grímuskylda í skólanum og lögð áhersla á mikilvægi persónubundinna sóttvarna, handþvottar og sprittunar.
Nemendur nota eftirfarandi innganga eftir því í hvaða stofum þeir eru:
- Hólf 1: stofur 4-5 og 6-7: Inngangur á Marmara og beint upp í stigahúsið á vinstri hönd.
- Hólf 2: 406-401, 405-402, 404-403: Gengið inn hjá nemendakjallara og beint upp á 4. hæð.
- Hólf 3: 306-305, 305-302, 304-303: Gengið inn hjá bílastæði kennara og þaðan inn í nýbyggingu.
- Hólf 4: 206-201, 205-202, 204-203: Inngangur fyrir aftan hús, milli Versló og Verkís. Farið upp um brunastigann.
- Hólf 5: Heimilistæki og Hagkaup, Hben og Hafskip, Eimskip-Flugleiðir: Gengið inn hjá íþróttahúsi/vaktmanni.
Próftafla annarinnar hefur þegar verið birt á heimasíðu skólans og mun hún standa. Þau próf sem þar eru kynnt sem heimapróf verða heimapróf.
Við minnum þá nemendur, sem búa langt frá skólanum, á að hægt er að panta aðstöðu á bókasafninu til að sinna heimatímum ef ekki vinnst nægur tími til ferðalaga í hádeginu.
Við hlökkum til að taka á móti ykkur í skólanum og minnum á að stutt er eftir af önninni og þið eigið hrós skilið fyrir þrautseigju og dugnað í námi.

Breytt fyrirkomulag kennslu í næstu viku
Verið er að vinna að breyttu skipulagi á skólastarfi miðað við nýja reglurgerð um sóttvarnir. Reglugerðin sem tekur gildi miðvikukdaginn 18. nóvember, hefur ekki verið kynnt formlega en skv. þeim upplýsingum sem fram hafa komið í fjölmiðlum þá verða reglur fyrir framhaldsskóla rýmkaðar. Þær breytingar sem kynntar hafa verið munu gera okkur kleift að hefja staðbundna kennslu að nýju í húsnæði skólans að einhverju leyti. Nánara fyrirkomulag verður tilkynnt á mánudaginn.

1-A í Erasmus+ verkefni
Eitt af þeim nýju Erasmus+ verkefnum sem Verzlunarskóli Íslands tekur þátt í frá og með haustinu 2020 er verkefnið Digitatal Competence and e-safety, sem fjallar um leikni í meðferð upplýsingatækni og ýmis mál sem varða öryggi á þeim vettvangi. Skólar frá Grikklandi, Ítalíu, Slóvakíu og Svíþjóð standa með okkur að verkefninu. Unnin verða verkefni og tekin til umfjöllunar margvísleg efni á þessu sviði sem varða svo miklu í samtímanum. 1-A sem er á alþjóðabraut mun taka þátt í verkefninu, en kennararnir sem vinna með þeim eru Ármann Halldórsson, Bertha Sigurðardóttir og Hallur Örn Jónsson. Vikufundir með kennurum og nemendum verða haldnir í hverju landi og vonast er til að hægt verði að hefjast handa um leið og rofar til í farsóttamálum.

Er þín fjölskylda NGK fjölskylda?
Norður-Atlantshafsbekkurinn (Nord-Atlantisk gymnasiumklasse), NGK, er nýjung fyrir ungmenni á Íslandi, Færeyjum, Grænlandi og í Danmörku, sem hafa áhuga á að mennta sig á Norður-Atlantshafssvæðinu. Nemendur mynda bekk sem á þremur árum fær bæði faglegt og menningarlegt framlag frá fjórum löndum. Að auki fá þeir aðgang að einstakri námsbraut sem inniheldur meðal annars líftækni, stærðfræði og norðurskautstækni.

Kennsla áfram í formi heimakennslu
Engin breyting verður á skólastarfi í Verzlunarskólanum í kjölfar nýrrar reglugerðar sem tekur gildi 3. nóvember. Skólastarf verður áfram í formi heimakennslu.
Kennarar geta boðað bekki sína í próf eða verkefnakynningar í húsnæði skólans enda samrýmist það reglum um takmörkun á skólahaldi.