29. jan. 2021 : Listó leikritið 10 hlutir

Listafélag Verzlunarskóla Íslands setur upp leiksýningu í hátíðarsal skólans ár hvert. Mikill metnaður er lagður í uppsetninguna og ekki síður í leikmyndina en nemendur sjá alfarið um hana sjálfir. Verkið sem varð fyrir valinu að þessu sinni fékk nafnið 10 hlutir en leikritið er byggt á kvikmyndinni 10 things I hate about you. Leikstjóri verksins er Tómas Helgi Baldursson og Helgi Grímur Hermannsson sá um handrit. Við hvetjum ykkur til að sjá þetta flotta verk.

27. jan. 2021 : Frí fyrir hádegi á morgun (28. jan.)

Fimmtudaginn 28. janúar verður frí fyrir hádegi hjá nemendum vegna skólaþróunarvinnu kennara. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá klukkan 12:40

21. jan. 2021 : NGK bekkurinn kominn til Íslands

Fyrsti nemendahópurinn í Norður -Atlantshafsbekknum (NGK) er kominn til Íslands og stundar nú nám við Verzlunarskólann. Í bekknum eru 22 nemendur frá Grænlandi, Íslandi, Danmörku og Færeyjum. Bekkurinn tók fyrsta árið í Danmörku í Gribskov Gymnasium. Frá Danmörku fór bekkurinn síðan til Færeyja í 2. bekk á haustönn og eins og áður kom fram mun bekkurinn stunda nám sitt hér við skólann þessa önnina. Á 3. árinu mun bekkurinn færa sig yfir til Grænlands og stunda nám í GUX menntaskólanum í Sisimiut. Allir nemendur bekkjarins hljóta danskt stúdentspróf af náttúrufræðibraut.

Hufflepuff vistin með kennurum: Ármann Halldórss. Hildur Kaldalóns, Björgvin Haukur Bjarnas.  Ísak Pétur Bjarkars. Víglundur Ottó Þorsteinss. Pétur Steinn Atlas. Kolbeinn Högni Gunnarss. Helga Ben.

15. jan. 2021 : Heimavistabikar afhentur

Haustönn 2020 kenndu Ármann Halldórsson og Helga Benediktsdóttir valnámskeið um Harry Potter bækurnar í ensku. Hluti af þessu bráðskemmtilega námskeið var heimavistakeppnin, en nemendum var skipt upp í heimavistir með strangvísindalegum aðferðum. Í þetta skipti sýndi Hufflepuff mesta leikni í hinum ýmsum þrautum og reyndust hafa mestan siðferðisstyrk. Hlutu þau að launum hinn eftirsótta heimavistabikar í lok annar og önnur vegleg verðlaun; gjafabréf í Búlluna og Nexus. Að auki hlaut Indiana Breiðfjörð Árnadóttir verðlaun fyrir besta búning í búningakeppni áfangans, sem að þessu sinni fór fram á Teams.  

12. jan. 2021 : Vefverslun Matbúðar

Í dag opnaði vefverslun Matbúðar, nemendur geta því pantað vörur úr Matbúð og sótt í frímínútum klukkan 10 eða í hádegishléinu. Afhendingarstaðir eru þrír í skólanum. Nóg var að gera hjá Matbúðarkonum í dag enda tóku nemendur vel í þessa nýjung. Vöruúrvalið er fjölbreytt en þar má m.a. finna ýmsa ávexti, chiagrauta, rúnstykki með áleggi og kjúklingasalat í teriyaki. 

 

7. jan. 2021 : Full staðkennsla í næstu viku

Frá og með mánudeginum 11. janúar verða allir tímar stundatöflu kenndir í staðnámi í skólanum.

Þar sem allir árgangar eru að koma í skólann á sama tíma er mikilvægt að nemendur noti þá innganga sem þeirra heimastofa hefur fengið úthlutað. (sjá frétt )

Þá hvetjum við nemendur til að koma með nesti til að minnka sem mest umferð á göngum skólans og við innganga.

Vefverslun Matbúðar fer í loftið í næstu viku og verður kynnt fyrir ykkur sérstaklega.

Við minnum á að samkvæmt reglugerð heilbrigðisráðherra um skólahald er grímuskylda þar sem ekki er hægt að tryggja 2 metra á milli aðila. Þetta á við í öllum kennslustofum skólans og á göngum hans.

Íþróttakennsla verður áfram í formi útikennslu og hafa nemendur fengið upplýsingar um fyrirkomulagið frá sínum kennara.

Við gerum okkur öll grein fyrir því að COVID-19 er ekki búið og enn eru smit í samfélaginu okkar. Stöndum saman og sinnum persónubundnum sóttvörnum með það að leiðarljósi að skólahald geti haldið áfram í staðnámi á þessari önn.

Þá ítrekum við að þeir sem finna fyrir einhverjum einkennum haldi sig heima og fari í sýnatöku.

Við hlökkum til að sjá ykkur í skólanum, alla daga, allan daginn.

Skólastjórnendur

5. jan. 2021 : Bókasafn VÍ

Það gleður okkur að segja frá því að Bókasafn VÍ hefur verið opnað aftur en þó að teknu tilliti til fjöldatakmarkana og sóttvarna. Hér má sjá helstu takmarkanir og ráðstafanir sem gerðar eru:

4. jan. 2021 : Bóksala

Sala á bókum og heftum sem ekki eru seld í bókabúðum fer fram á Bókasafni VÍ (4. hæð). Bóksalan verður opin á eftirfarandi tíma:

4. jan. 2021 : Inngangar í skólann

Til þess að halda nemendum skólans aðskildum er bekkjum skipt upp í 8 hólf út frá heimastofum. Hvert hólf hefur sinn sérstaka inngang (og sama útgang) og það má ekki fara aðra leið inn í skólann en þá sem tilheyrir hólfinu.

Hólfin eru eftirfarandi:

  • Hólf 1: stofur 1-7 (4. hæð): Inngangur á Marmara og beint upp í stigahúsið á vinstri hönd.
  • Hólf 2: stofur, 9-14 (4. hæð): Gengið inn hjá nemendakjallara og beint upp á 4. hæð.
  • Hólf 3: 401-406 (4. hæð): Gengið inn hjá bílastæði kennara og þaðan inn í nýbyggingu.
  • Hólf 4: OJ&Kaaber, Saltsalan, SH, SÍF og VR (3. hæð): Inngangur á Marmara og beint í stigahúsið á vinstri hönd.
  • Hólf 5: 301-306 (3. hæð): Gengið inn hjá bílastæði kennara og þaðan inn í nýbyggingu.
  • Hólf 6: BMVallá, Eimskip, Flugleiðir, (2. hæð) : Gengið inn hjá íþróttahúsi/vaktmanni.
  • Hólf 7: HBen, Hagkaup, Hafskip, Heimilistægi, Hekla, (2. hæð): Gegnið inn á Marmara.
  • Hólf 8: 201-206 (2. hæð): Inngangur fyrir aftan hús, milli Versló og Verkís. Farið upp um brunastigann.

Athugið að nemendur eiga ekki fara á milli sóttvarnarhólfa nema þeir eigi sérstakt erindi annað, t.d. við skrifstofu eða á bókasafn. Það er til þess að minnka líkur á hópsmiti ef upp kemur smit á innan skólans. Einnig er mikilvægt smitrakning gangi vel ef upp kemur grunur um smit á meðal nemenda.