28. jún. 2022 : Fyrsta brautskráning NGK-bekkjarins

Fyrsta brautskráning Norður-Atlantshafsbekkjarins fór fram í blíðskaparveðri í Sisimiut á Grænlandi í dag, 28. júní. Alls brautskráðust 22 nemendur með danskt stúdentspróf og þar á meðal voru fimm íslenskir nemendur, Björn Rafnar Ólafsson, Freydís Glóð Viborg, Markus Halfdan Haar, Svava Þóra Árnadóttir og Valtýr Elliði Einarsson. Þau hafa verið verðugir fulltrúar Íslands í þessu einstaka samvinnuverkefni fjögurra skóla í jafnmörgum löndum.

Með þessari útskrift hefur fyrsti hópurinn klárað þá ævintýralegu vegferð sem námið í Norður - Atlantshafsbekknum er, en nemendur dvelja fyrsta árið sitt í Gribskov í Danmörku. Annað námsárið skiptist í tvennt, annars vegar haustönn í Færeyjum og hins vegar í Verzló á vorönn. Lokanámsárið er svo á Grænlandi. Önnin í Verzló var sérlega ánægjuleg og gaman að hafa þennan merkilega nemendahóp hjá okkur og kynnast þeim vel.

Nemendur bekkjarins eru einstaklega samheldin hópur og hafa tekið út mikinn þroska á vegferð sinni. Námið gekk mjög vel hjá þeim og það voru stoltir nemendur sem tóku við skírteinum sínum við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu í Sisimiut að viðstöddum fjölskyldum sínum og fulltrúum Verzlunarskólans.

Einn NGK bekkur er á hverju námsári og munu því íslenskir NGK nemendur vera við nám í Danmörku, Færeyjum og Grænlandi núna í haust. Hægt er að lesa meira um NGK-bekkinn hér.

23. jún. 2022 : Lok innritunar 2022

Innritun í Verzlunarskólann fyrir komandi skólaár er lokið. Alls bárust 747 umsóknir, 569 sem val 1 og 178 sem val 2.

Innritaðir voru 363 nemendur frá 60 grunnskólum víðs vegar af landinu.

Við val á nemendum var að öllu leyti stuðst við þau viðmið sem skólinn hefur sett sér varðandi inntöku nýnema. Horft var til námsmats úr grunnskóla og var bókstöfum varpað í tölustafi samkvæmt kvarða sem Menntamálastofnun hefur gefið út. Nánar er hægt að lesa um innritunarviðmið hér.

Þá var horft sérstaklega til jöfnun kynjahlutfalls meðal nýnema og þess gætt að hlutfall hvers kyns færi ekki yfir 60% innritaðra nemenda.

Hæsti stigafjöldi sem hægt er að fá samkvæmt reiknireglu skólans er 24 stig eða A í öllum greinum sem horft er til. 63 umsækjendur voru með A í öllu eða 17% innritaðra. 270 umsækjendur voru með 23 stig eða hærra eða 74% innritaðra. Þetta er sama hlutfall og í innritun 2021.

Allir umsækjendur með 22,75 stig eða hærra komumst inn í skólann, annaðhvort inn á brautarval 1 eða 2.

Skipting milli brauta er að einn bekkur verður á alþjóðabraut og einn bekkur á nýsköpunar- og listabraut. Sex bekkir á náttúrufræðibraut, fjórir þeirra á líffræðilínu og tveir á eðlisfræðilínu. Sex bekkir á viðskiptabraut, tveir á hagfræðilínu, einn á stafrænni viðskiptalínu og þrír á viðskiptalínu.

Nemendur voru teknir inn á brautir og línur og er þeim raðað í bekki út frá þeim forsendum sem og tungumálavali. Öll sæti í öllum bekkjum eru fullskipuð og því er ekki hægt að taka á móti óskum nýnema um að skipta um bekk.

Ef einhver afþakkar pláss verður skoðað í haust hvort tekinn verði inn nýr nemandi. Nemendur sem fengu ekki umsókn sína samþykkta við skólann geta óskað eftir því að fara á biðlista ef pláss losnar. Skráning á biðlista fer fram í gegnum netfangið verslo@verslo.is

Starfsfólk Verzlunarskólans hlakkar til að taka á móti nýjum nemendum á nýnemakynningu skólans, föstudaginn 19. ágúst. Nánari upplýsingar um tímasetningu koma hingað inn á síðuna í byrjun ágúst.

Bestu óskir um gleðilegt sumar!

14. jún. 2022 : Sumarleyfi

Nú líður senn að sumarlokun skrifstofu Verzlunarskólans. Endurtektarprófum er lokið og nemendur hafa fengið einkunn birta á INNU.

Skráning í fjarnám fer fram hér á heimasíðu skólans auk þess hægt er að nálgast próftöflu sumarannar.

 

Bókalistar eru aðgengilegir á heimasíðunni og verða einnig aðgengilegir í INNU í ágúst.

 

Skrifstofa skólans verður lokuð frá 17. júní til og með 2. ágúst.

Starfsfólk skólans óskar nemendum skólans og forráðamönnum þeirra gleðilegs sumars.

2. jún. 2022 : Verzlunarskóli Íslands hlýtur Grænfánann í þriðja sinn

Föstudaginn 13. maí tók Verzlunarskólinn á móti Grænfánanum í þriðja sinn. Grænfáninn er alþjóðleg viðurkenning á góðum árangri í umhverfismálum. Fulltrúar í umhverfisnefnd nemenda og Margrét Auðunsdóttir, verkefnastjóri Grænfánaverkefnisins veittu fánanum viðtöku úr hendi verkefnisstjóra Landverndar. Að því loknu var fáninn dreginn að húni í glampandi vorsólinni sem ríkti þennan fallega dag.