27.08.2025 Fimm fyrrverandi nemendur VÍ fengu styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta HÍ Á mánudaginn síðastliðinn tóku fyrrverandi nemendur Verzlunarskólans, Fannar Grétarsson, Hrafn Ingi Jóhannsson, Inga Júlíana Jónsdóttir, Nói Pétur Ásdísarson Guðnason og Vala Katrín Guðmundsdóttir, við styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands. Styrkir eru veittir nýnemum við Háskóla Íslands sem náð hafa framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs og jafnframt látið til sín taka á öðrum sviðum, svo sem í félagsstörfum í framhaldsskóla eða listum og íþróttum. Verzlunarskólinn óskar þeim til hamingju.