Fyrrverandi nemandi VÍ fékk styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta HÍ

Á mánudaginn síðastliðinn tók fyrrverandi nemandi Verzlunarskólans, Ragna María Sverrisdóttir, við styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands.

Styrkir eru veittir nýnemum við Háskóla Íslands sem náð hafa framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs og jafnframt látið til sín taka á öðrum sviðum, svo sem í félagsstörfum í framhaldsskóla eða listum og íþróttum.

Á myndinni er Ragna María með Jóni Atla Benediktssyni, rektor HÍ.

Verzlunarskólinn óskar henni til hamingju.

Aðrar fréttir