Glæsilegt galakvöld útskriftarnemenda

Föstudaginn 2. maí kvöddu útskriftarnemar skólann sinn og kennara með skemmtilegri dagskrá og veglegu galakvöldi.

Dagurinn hófst með athöfn í Bláa sal þar sem nemendur komu saman til að njóta góðrar og skemmtilegrar stundar. Að henni lokinni var haldið Pálínuboð í heimastofum, þar sem kennarar voru kvaddir með fallegum kveðjuorðum.

Um kvöldið fór síðan fram glæsilegt galakvöld í Gullhömrum. Gleðin var í fyrirrúmi þar sem skólagöngunni var fagnað með veisluhaldi, gleði og góðri samveru.

Hér má sjá brot af stemningunni frá bæði deginum og kvöldinu í myndasafni sem fylgir fréttinni.

Aðrar fréttir