16.08.2025 Matseðill Matbúðar Góð orka í upphafi skóladags skilar sér út daginn. Í fyrstu frímínútum dagsins er öllum nemendum boðið upp á hafragraut og lýsi án endurgjalds – það eina sem þarf er að koma með sitt eigið ílát. Í hádeginu er hægt að fá sér heita og næringarríka máltíð í Matbúð skólans. Matseðil vikunnar er að finna á heimasíðu skólans undir Matseðill, þar sem sést hvaða rétti verður boðið upp á hvern dag. Verðskrá Stök máltíð: 1.300 kr. 10 máltíðir: 12.000 kr. 20 máltíðir: 22.000 kr. Sem heilsueflandi framhaldsskóli leggur skólinn áherslu á að nemendur hafi aðgang að hollum, bragðgóðum og orkuríkum valkostum yfir daginn.