02.05.2025 Nemendur heimsækja kínverska sendiráðið Síðastliðinn miðvikudag heimsóttu nemendur á þriðja ári á alþjóðabraut kínverska sendiráðið í Borgartúni. Þar tók á móti hópnum kínverski sendiherrann, He Rulong, og fleiri úr starfsliði sendiráðsins. Hópurinn fékk kynningu á starfsemi sendiráðsins og átti síðan um klukkutíma innihaldsríkt spjall þar farið var yfir víðan völl og m.a. rætt um samskipti landanna og stöðu Kína í alþjóðasamfélaginu. Einnig var gaman heyra frá starfsmönnum sendiráðsins hvernig það er að vera sendifulltrúi á Íslandi. Nemendur hafa á þessari önn verið að kynna sér málefni Suðaustur Asíu og var fróðlegt að heyra um viðhorf Kínverja frá fyrstu hendi. Einstaklega vel var tekið á móti hópnum og létu nemendur og kennarar mjög vel af heimsókninni.