Gönguferð í góða veðrinu
Það var blíðskaparveður þegar nemendur og starfsfólk Verzlunarskóla Íslands fóru í dag í heilsugöngu um hverfið í kringum skólann. Eins og áður er gangan liður í verkefninu heilsuefling framhaldsskóla, en hreyfing er í forgrunni verkefnisins skólaárið 2012/2013.
Í stað hefðbundinna 60 mínútna kennslustunda fyrir hádegi var kennt í 50 mínútur til að rýma fyrir hálftíma göngu í síðasta tímanum fyrir hádegi. Óhætt er að segja að gangan hafi heppnast vel, enda ekki hægt að kvarta yfir veðrinu sem var, eins og áður segir, eins og best verður á kosið.
Smellið á myndirnar til að stækka þær.