VÍ - Flensborg í úrslitum MORFÍs
Föstudaginn 12. apríl mætir MOROFÍs lið Verzlunarskólans liði Flensborgar í úrslitum keppninnar. Keppnin fer fram í Hörpu og hefst klukkan 20:00, húsið opnar 19:00. Umræðuefni kvöldsins er „Hjarðareðlið“ og mælir Verzló á móti.
Ræðuliðið hefur staðið sig einstaklega vel í vetur og því er um að gera að mæta á staðinn og styðja liðið til sigurs.
Ræðulið Verzlunarskólans skipa:
Hrafnkell Ásgeirsson
Sigurður Kristinsson
Hersir Aron Ólafsson
Sigríður María Egilsdóttir