Verzló sigurvegari MORFÍs
Lið Verzlunarskóla Íslands gerði sér lítið fyrir og sigraði MORFÍs þegar liðið lagði Flensborg að velli á föstudaginn sl. í Eldborgarsal Hörpunnar.
Liðið skipa þau Hrafnkell Ásgeirsson, Sigurður Kristinsson, Hersir Aron Ólafsson og Sigríður María Egilsdóttir og eiga þau heiður skilinn fyrir flotta frammistöðu í allan vetur. Sigríður María var valinn Ræðumaður Íslands fyrir frammistöðu sína í keppninni.
Umræðuefni kvöldsins var Hjarðareðlið og mælti Verzló á móti. Myndir og umfjöllun um keppnina má nálgast á mbl.is með því að smella hér.
Mynd: mbl.is