Prófsýning og fall í áfanga
Fall í áfanga
Því miður gerist það á hverju ári að nemendur ná ekki þeim kröfum sem til þeirra eru gerðar í áföngum og þá er mikilvægt að þeir og foreldrar þeirra kynni sér vel hvaða reglur eiga við þegar nemandi fellur í áfanga. Í meginatriðum gerist eftirfarandi:
Nemendur sem falla á vorönn (maí) verða að endurtaka áfangann og verða próf haldin í júní. (Nemendur geta ráðið því hvort þeir taka júníprófin eða ekki. Hins vegar er hér um "tækifæri" númer 2 hjá nemendum að ræða hvort sem þeir taka prófið eða ekki). Þeir sem falla aftur geta þá tekið áfangann í þriðja sinn í fjarnámi VÍ og verða próf haldin í ágúst.
Athugið að nemendur sem voru með fall í áfanga fyrir jól geta ekki þreytt endurtekt í sama áfanga í júní, enda er þá um fjórðu tilraun að ræða. Dæmi: Nemandi í 3. bekk sem féll í BÓK113 eða NÁT113 í desember og hefur enn ekki staðist hann hefur ekki lengur endurtökurétt í þeim áfanga.
Nemandi má að hámarki endurtaka 3 áfanga. Falli hann í fleirum en þremur áföngum þá telst hann fallinn á árinu. Ef nemandi fellur þrisvar í sama áfanga telst hann endanlega fallinn. (Unnið úr skólareglum á netinu.)
Mælt er eindregið með því að nemendur nýti sér endurtökuprófin í júní og losi sig við falláfanga sem fyrst. Prófin verða 3. – 5. júní og eru nemendur sjálfkrafa skráðir í þau. Nánari próftafla verður auglýst síðar á heimasíðu skólans. Þeir sem endurtaka í maí þurfa að skrá sig sérstaklega í fjarnámið á fjarnámsvefnum (www.verslo.is/fjarnam ) fyrir 11. júní.