07.05.2025 Peysufatadagurinn 2025 Peysufatadagurinn var haldinn hátíðlegur mánudaginn 5. maí og í ár bar hann einstakt nafn: Kærleikspeysó, til minningar um Bryndísi Klöru bekkjarsystur þeirra. Árgangurinn fékk fallegt armband með litlu blómi til minningar um Bryndísi Klöru hannað af Hildi Hafstein og saman sköpuðu þau hlýja og kærleiksríka stemningu á þessum eftirminnilega degi. Athöfnin hófst í Bláa sal með skemmtilegri dagskrá. Að henni lokinni var boðið upp á hressingu á Marmaranum áður en hópurinn hélt af stað í rútum að Hallgrímskirkju. Þaðan var gengið saman niður á Ingólfstorg þar sem nemendur dönsuðu við harmonikku undirleik. Kvöldið endaði á skemmtilegu balli þar sem gleðin hélt áfram langt fram á kvöld. Ljósmyndari: Róbert Reynisson