Prófsýning, endurtektarpróf og upphaf næstu annar
Birting einkunna
Opnað verður á einkunnir nemenda í INNU þann 17. desember klukkan 19:00. Forráðamenn nemenda yngri en 18 ára sjá einnig einkunnir á INNU.
Prófsýning
Þar sem núverandi reglugerð um takmörkun á samkomum gildir til 22. desember mun prófsýning færast fram á nýtt ár, nánar tiltekið þann 4. janúar kl: 11:15-12:00. Þeir nemendur sem falla í áfanga munu fá sendar prófúrlausnir sínar frá kennurum sínum.
Endurtektarpróf
Þeir nemendur sem ekki ná tilskildum árangri í einstaka greinum eru sjálfkrafa skráðir í endurtektarpróf sem lögð verða fyrir 4.-6. janúar. Próftafla endurtektarprófa mun birtast hér á heimasíðunni mjög fljótlega.
Við minnum á skólareglur varðandi námsframvindu en þar segir að nemandi hafi þrjú tækifæri til að ljúka áfanga, endurtektarpróf er tækifæri númer 2, hvort sem nemandinn nýtir endurtökuréttinn eða ekki. Þeir sem ekki ná að ljúka áfanga í endurtöku þurfa að skrá sig í fjarnám skólans í viðkomandi áfanga og taka hann samhliða dagskólanum á vorönn.
Upphaf næstu annar
Skólabyrjun er samkvæmt skóladagatali 5. janúar og hefst kennsla klukkan 8:30 samkvæmt stundatöflu. Stundatöflur fyrir hvern bekk verða aðgengilegar á INNU von bráðar.
Bóksala
Sala á bókum og heftum sem ekki eru seld í bókabúðum fer fram í gegnum vefverslun Matbúðar.
Jólafrí
Skólanum verður lokað þann 20. desember klukkan 15.00 vegna jólaleyfis og hann opnaður aftur þriðjudaginn 4. janúar klukkan 8:00. Skrifstofan verður opin milli 8 og 10 en lokar þá til klukkan 12 vegna starfsmannafundar.
Verzlunarskólinn óskar starfsfólki, nemendum, foreldrum og forráðamönnum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.