19.02.2025 Tímasetningar brautskráningar 2025 Brautskráning stúdenta fer fram laugardaginn 24. maí næstkomandi í Borgarleikhúsinu. Athöfnin verður tvískipt og drógu Kári Einarsson og Íris Sævarsdóttir um tímasetningu útskriftar hverrar brautar. Kl. 12:00 – Athöfn nemenda af nýsköpunar- og listabraut og viðskiptabraut. Kl. 14:00 – Athöfn nemenda af alþjóðabraut og náttúrufræðibraut. Gera má ráð fyrir að hvor athöfn taki um 1 klukkustund og 30 mínútur.