07.05.2025 Verzló sigurvegari MORFÍs Lið Verzlunarskóla Íslands gerði sér lítið fyrir og sigraði MORFÍs þegar liðið lagði Menntaskólann við Sund að velli á miðvikudaginn sl. á Hilton Nordica-hótelinu. Umfjöllunarefni keppninnar var ritskoðun, Verzló mælti á móti en MS með. Andrés Kristinn Haraldsson, stuðningsmaður Verzló, var valinn stigahæsti ræðumaður kvöldsins og hlaut nafnbótina „Ræðumaður Íslands“. Lið Verzlunarskólans var skipað Guðmundi Kristni Davíðssyni liðsstjóra, Isabel Dís Sheehan frummælanda, Önnu Maríu Allawawi Sonde meðmælanda og Andrési Kristni Haraldssyni stuðningsmanni. Innilega til hamingju! Myndirnar sem fylgja fréttinni eru fengnar að láni af Instagramsíðu malfoverzlo
Umfjöllunarefni keppninnar var ritskoðun, Verzló mælti á móti en MS með. Andrés Kristinn Haraldsson, stuðningsmaður Verzló, var valinn stigahæsti ræðumaður kvöldsins og hlaut nafnbótina „Ræðumaður Íslands“. Lið Verzlunarskólans var skipað Guðmundi Kristni Davíðssyni liðsstjóra, Isabel Dís Sheehan frummælanda, Önnu Maríu Allawawi Sonde meðmælanda og Andrési Kristni Haraldssyni stuðningsmanni. Innilega til hamingju! Myndirnar sem fylgja fréttinni eru fengnar að láni af Instagramsíðu malfoverzlo