Verzlunarskóli Íslands auglýsir eftir enskukennara í afleysingu á vorönn 2023
Verzlunarskóli Íslands auglýsir eftir enskukennara í afleysingu á vorönn 2023.
Hæfnikröfur:
- Háskólapróf í viðkomandi grein.
- Kennsluréttindi.
- Reynsla af kennslu í framhaldsskóla er kostur.
Við bjóðum:
- Góða vinnuaðstöðu.
- Góðan starfsanda á framsæknum vinnustað.
Nánari upplýsingar gefur Guðrún Inga Sívertsen, skólastjóri. Umsóknarfrestur er til 10. desember og skal senda umsóknir ásamt ferilskrá á netfangið gunninga@verslo.is
Verzlunarskóli Íslands er framhaldsskóli með um 1050 nemendur. Skólinn er bekkjaskóli. Nemendur geta valið á milli fjögurra mismunandi brauta og útskrifast með stúdentspróf. Samkvæmt lögum um framhaldsskóla nr. 92 frá 2008 er ekki heimilt að ráða einstakling til starfa sem hlotið hefur dóm fyrir brot á XXII. kafla almennra hegningarlaga og því er beðið um sakavottorð áður en ráðið er í starfið