Fagnám verslunar og þjónustu
Verzlunarskóli Íslands, býður upp á nýtt fagnám fyrir starfandi verslunarfólk í samstarfi við Starfsmenntasjóð verslunar- og skrifstofufólks.
Námið er 90 einingar og er blanda af fjarnámi og vinnustaðanámi í fyrirtækjunum. Umsækjendum stendur til boða að fara í raunfærnimat hjá Mími þar sem kunnátta og hæfni hvers og eins er metin til eininga á móti kenndum áföngum. Þannig fá einstaklingar með starfsreynslu og hæfni slíkt metið til eininga og styttingar á námi sínu. Markmið námsins, er meðal annars að nemendur auki þekkingu sína og færni á vinnustað, þjálfist í að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu og geti stýrt verkefnum í verslun í samræmi við skipulag og áætlanir.
Má bjóða þér að panta ráðgjöf vegna raunfærnimats?
Viltu auka færni þína og þekkingu í starfi?
Hér má nálgast nánari upplýsingar um skipulag námsins: Fagnám verslunar og þjónustu
Grein frá veftímaritinu Gátt: Fagbréf staðfestir nám á vinnustað
Frétt frá Viðskiptablaðinu: Fyrst til að klára fagnám í verslun
Frétt frá Morgunblaðinu: Námið himnasending
Frétt frá Verslo.is: Menntasprotinn
Spurt og svarað:
Hvað er fagnám?
90 eininga nám sem er bæði bóklegt og vinnustaðanám. Raunfærnimat á móti kenndum áföngum.
Hvað kostar námið?
Kostnaður við námið er 400.000 krónur. Lengd námsins miðast við þrjár annir en er þó hægt að taka það á lengri tíma.
Hver eru skilyrðin fyrir inngöngu í námið?
Skilyrði fyrir inngöngu í námið er að vinnustaður viðkomandi gerist aðili að verkefninu með því að skilgreina 15 eininga vinnustaðanám sem er sérhæft viðkomandi vinnustað. Einnig þarf vinnustaðurinn að leggja til matsaðila sem þjálfaður verður til að framkvæma raunfærnimat og fylgja eftir vinnustaðanámi
Hvenær get ég hafið nám?
Nemendur geta valið um að hefja bóklega námið í janúar eða í september. Umsókn um raunfærnimat fer fram hjá Mími. Allar upplýsingar um raunfærnimat er hægt að fá hjá náms- og starfsráðgjöfum Mímis, radgjof@mimir.is
Hvar fer innritun fram?
Innritun í námið fer fram hjá Verzlunarskólanum í samstarfi við vinnustað viðkomandi.
Hvar get ég nálgast upplýsingar um námið?
Ef óskað er eftir nánari upplýsingum um námið má senda tölvupóst á verslo@verslo.is eða hringja í síma 5900600
Hvar get ég nálgast upplýsingar um raunfærnimat?
Upplýsingar um raunfærnimat og fyrirkomulag þess er hægt að nálgast hjá Mími, eða með því að senda tölvupóst á radgjof@mimir.is
Í hvaða áföngum fer ekki fram raunfærnimat?
Þjónustu- og samskiptafærni eru áfangar sem allir nemendur taka og því fer ekki fram raunfærnimat í þeim.
Hér má sjá nokkur myndskeið til upplýsingar um námið
Fagnám verslunar og þjónustu: Samkaup og Verzlunarskóli Íslands
Fagnám í verslun og þjónustu - styrktu stöðu þína
Fagnám og raunfærnimat í verslun og þjónustu - nýttu starfsreynslu þína