Skólasöngur Verzlunarskóla Íslands

Kepp ötul fram, vor unga stétt,
að efla landsins gagn;
brátt færðu krafta, fremd og traust, 
og færð til verka magn.
Oft brautryðjandans þraut var þung
en þú ert sterk og djörf og ung
og framkvæmd mörg á Fróni er
í framtíð ætluð þér.

Vér elskum þig, vort ættarland,
þín ögur, fjöll og dal;
og þínum hag og þinni sæmd
vor þróttur helgast skal.
Þú framtíð vora, Ísland átt,
þín æska setur markið hátt
með göfug heit að gagna þér
og Guð með henni er.

Og skóli vor, um öll vor ár
þér unna skulum vér
og muna æskuárin glöð,
sem áttum vér hjá þér.
Þitt aukist gengi, eflist þú,
sem æskulýðsins glæðir trú
og vilja og þrek hins vaska manns
og velferð ættarlands.

Texti eftir Þorstein Gíslason. 

Lag útsett af  J.K. Cortez