Prófundirbúningur
Ert þú með eftirfarandi atriði á hreinu?
Gátlisti fyrir próf
- Skipuleggðu lesturinn fram að prófdegi og fylgdu próftöflu
- Finndu góða staði til að læra á. Kynntu þér t.d. vel opnunartíma bókasafnsins
- Skipuleggðu lesturinn út frá námsáætlun og gátlistum kennara. Hér er vikuáætlun sem sniðugt er að prenta út og fylla inn í sjálf/ur
- Finndu til og flokkaðu námsbækur, verkefni, skyndipróf og önnur gögn úr hverri námsgrein
- Ekki hika við að leita þér aðstoðar hjá kennara, vinum, vandamönnum og jafnvel aukakennurum
- Prófaðu sjálfa/n þig. Farðu vel yfir öll skyndipróf. Búðu til þín eigin próf.
- Láttu hlýða þér yfir. Prófaðu að nota Quizlet
- Nýttu síðustu klukkutímana til upprifjunar
- Hafðu reglu á svefn- og matarvenjum.
- Slökun (Núvitundarsetrið - á Spotify) á milli lestrarlota getur gert gæfumuninn
- Góður nætursvefn fyrir próf
Gátlisti í prófi
- Mættu tímanlega í prófið. Hafðu með þér smá hressingu í gegnsæjum umbúðum skv. prófreglum skólans
- Skráðu minnisatriði á rissblað, svo sem formúlur, lykilhugtök og annað sem er þér ofarlega í huga þegar þú sest í prófstofu
- Hlustaðu vel á öll munnleg fyrirmæli og lestu vel skrifleg fyrirmæli
- Lestu allt prófið yfir áður en þú byrjar
- Vertu með úr eða klukku fyrir framan þig í prófinu. Vertu viss um að þú vitir vægi hverrar spurningar svo að þú getir skipulagt tímann út frá því. Eyddu ekki meiri tíma í spurningu en vægi hennar er
- Spurðu kennarann ef þú ert ekki viss. Eyddu ekki tíma í að reyna að átta þig á óljósum fyrirmælum. Óskaðu strax eftir hjálp
- Svaraðu léttustu spurningunum fyrst. Breyttu ekki svari eftir á nema þú sért viss í þinni sök
- Ef þú ert í vafa reyndu þá við næstu spurningu. Komdu síðar að þeirri erfiðari
- Vertu stuttorð/ur og gagnorð/ur
Tímastjórnun í prófi
- Mættu með úr eða klukku í prófið!
- Hvert próf er 100% - ekki rugla því saman við gildi prófs í lokaeinkunn.
- Notaðu 10 mínútur í byrjun og 10 mínútur í lokin til að komast í gang, lesa yfir o.fl:
Dæmi: Ef próftími er 1 klukkustund = 60 mínútur
Þumaputtareglan í 1 tíma prófi er þá:
3 mínútur fyrir 5 stiga spurningu
6 mínútur fyrir 10 stiga spurning
9 mínútur fyrir 15 stiga spurningu o.s.frv.
Síðast uppfært 23. nóvember 2021